Robert Lewandowski skoraði fyrsta mark Barcelona er liðið hafði betur gegn Deportivo Alaves í spænski deildinni.
Mark Lewandowski kom á 22. mínútu eftir undirbúning frá Ilkay Gundogan og var staðan 0-1 í hálfleik. Það var síðan Gundogan sjálfur sem var á ferðinni í byrjun seinni hálfleiks og kom Barcelona í 0-2 forystu.
Omorodion minnkaði muninn fyrir heimaliðið aðeins tveimur mínútum síðar áður en Vitor Roque skoraði þriðja mark Barcelona á 62. mínútu en hann átti heldur skraulegar mínútur eftir markið. Fimm mínútum síðar fékk hann gult spjald og síðan fimm mínútum eftir það fékk hann seinna gula og þar með rautt.
Það hafði þó ekki nein áhrif á úrslit leiksins sem voru 1-3 og Barcelona komið í 50 stig í deildinni.