Halda fullum launum í fæðingarorlofi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. febrúar 2024 12:56 Örn Guðmundsson, fráfarandi forstjóri Mannvits og nýr framkvæmdastjóri COWI á Íslandi. COWI Verkfræðistofan Mannvit sem starfað hefur frá árinu 1963 heitir COWI frá og með næstu viku. COWI keypti íslensku verkfræðistofuna í fyrra og er nafnabreytingin hluti af sameiningarferli Mannvits við COWI-samstæðuna. Íslensku starfsfólki bjóðast fríðindi á borð við full laun í fæðingarorlofi. COWI sér fyrir sér vöxt og leitar að öflugu starfsfólki.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá COWI. Þar segir að með samruna fyrirtækjanna verði auðveldara að nýta samlegðaráhrif, sveigjanleiki verði aukinn sem og aðgengi að sérfræðingum COWI sem telja um átta þúsund einstaklinga víða um heim, að meðtöldum 280 Mannvitsmönnum sem nú verða starfsmenn COWI. „Samruninn þýðir að COWI getur nú boðið íslenskum viðskiptavinum sínum aukna þjónustu, sérfræðiþekkingu sem og aukinn mannskap til að vinna verkefni frá frumhugmynd til verkloka,“ segir í tilkynningunni. Á næstu árum áformi COWI að auka starfsemi og umsvif sín á Íslandi með áherslu á helstu styrkleika sína í innviðum, iðnaði, umhverfismálum og endurnýjanlegri orku. „Þessi aukning mun byggja á fjölbreyttum verkefnagrunni, meðal annars á þróun vindorku, á sviði rafeldsneytis, jarðvarmaverkefna og stærri verkefna á mannvirkjasviði. Takmarkið er að auðvelda enn frekar samstarfið við íslenska viðskiptavini sem snýr meðal annars að þróun miðstöðvar grænna orkuverkefna fyrir ýmsar atvinnugreinar og á þann hátt skapa lausnir í sameiningu.“ Nú þegar nafn og vörumerki breytist komi COWI til með að setja af stað herferð á Íslandi í því skyni að ráða fleiri sérfræðinga til starfa sem er hluti af fyrirhugaðri stækkun á íslenska markaðnum. „Samhliða breytingu vörumerkisins verða kynntar nýjungar fyrir starfsfólk. Má þar nefna aukin réttindi starfsfólks í fæðingarorlofi. COWI er þar með fyrsta verkfræðistofan á Íslandi sem býður starfsfólki í fullu starfi sex mánaða fæðingarorlof með uppbótargreiðslum sem samsvara fullum launum.“ Á Íslandi er 600 þúsund króna hámark á mánaðarlegar greiðslur í sex mánaða fæðingarorlofi. Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri COWI á Íslandi, segir vera þörf fyrir fleira starfsfólk í tengslum við verkefnin sem framundan eru. „Á árinu er útlit fyrir spennandi verkefni hér á landi, til dæmis gegnum við lykilhlutverki við byggingu nýja Landsspítalans, uppbygging Borgarlínunnar heldur áfram auk ýmissa verkefna tengdum vatnsaflsvirkjunum. Það skiptir höfuðmáli að þekkingin sé til staðar til að þjónusta jarðhita- og vatnsaflsverkefni og raforkuflutning. Einnig er vaxandi eftirspurn eftir þjónustu sem tengist vindorku og landeldi. Þetta þýðir að við viljum fá fleiri sérfræðinga í lið með okkur og búast má við að við auglýsum nýjar stöður á næstu mánuðum,“ segir Örn. COWI er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með höfuðstöðvar í Danmörku og yfir átta þúsund starfsmenn sem vinna að um tíu þúsund verkefnum að staðaldri víða um heim. „Í samvinnu við viðskiptavini COWI er unnið að því að móta þjónustu og lausnir á sviði sjálfbærni sem bæta lífsgæði fólks og komandi kynslóða. Þjónustusviðið nær yfir verkfræði, arkitektúr, orku og umhverfismál. COWI hefur sterka stöðu á Norðurlöndunum, í Bretlandi, Norður-Ameríku og Indlandi auk starfsemi í yfir 35 löndum sem eykur sveigjanleika og stuðning við viðskiptavini til að ná sjálfbærnimarkmiðum sínum.“
Reykjavík Kaup og sala fyrirtækja Danmörk Byggingariðnaður Orkumál Jafnréttismál Fæðingarorlof Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira