Líf færðist á markaðinn seinni hluta liðins árs en meðalsölutíminn lengdist Atli Ísleifsson skrifar 22. febrúar 2024 07:41 224 nýjar íbúðir voru fullgerðar á fyrsta mánuði ársins. Flestar þeirra, eða um hundrað eru í Reykjavík en um sjötíu í Kópavogi. Vísir/Vilhelm Kaupsamningar á nýliðnu ári voru 9.156 talsins og var heildarfjárhæð þeirra 644,4 milljarðar króna. Þar af voru gerðir 950 kaupsamningar í desembermánuði sem er vel yfir mánaðarmeðaltali ársins, meðal annars vegna magnkaupa á íbúðum sem ætlaðar voru Grindvíkingum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar kemur fram að á nýliðnu ári hafi kaupsamningum fækkað á fyrri hluta ársins en fjölgað á seinni hluta árs. „Kaupsamningum um sérbýli fækkaði hlutfallslega meira en kaupsamningum um fjölbýli líkt og búast má við þegar fasteignamarkaður dregst saman þar sem erfiðara er fyrir íbúðakaupendur að fjármagna stærri eignir í hærra vaxtastigi. Kaupsamningar á síðasta ári voru álíka margir og 2014,“ segir í skýrslunni. HMS Íbúðaverð lækkaði að raunvirði Fram kemur að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi lækkað um 1,2 prósent að raunvirði á milli janúarmánaða 2023 og 2024. „Undir lok síðasta árs gengu samtals 294 íbúðir kaupum og sölum í heildsölu. Af þeim voru 89 keyptar á síðustu vikum ársins ætlaðar Grindvíkingum. 224 nýjar íbúðir voru fullgerðar á fyrsta mánuði ársins. Flestar þeirra eða um 100 eru í Reykjavík en um 70 í Kópavogi. Á nýliðnu ári og í fyrsta skipti voru hrein útlán lífeyrissjóða meiri en útlán banka eða 75 ma. kr. samanborið við 63 ma. kr. hjá bönkum. Hrein ný útlán HMS til einstaklinga voru neikvæð um samtals 12 ma. kr. í fyrra. Árið 2023 urðu 302 fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð gjaldþrota sem er fjölgun um 243% frá fyrra ári. Leita þarf aftur til ársins 2011 til að finna viðlíka fjölda gjaldþrota í greininni,“ segir í skýrslunni. Sölutími lengdist á síðasta ári Í yfirlitinu greinir frá því að framboð á nýju húsnæði hafi aukist mikið á síðasta ári en um 850 nýjar íbúðir hafi verið til sölu í lok ársins á höfuðborgarsvæðinu samanborið við 350 í lok árs 2022. „Birgðatími nýrra íbúða hefur lengst og erfiðara er en áður að selja nýjar íbúðir. Um 27% meira af eldra húsnæði er til sölu á höfuðborgarsvæðinu samanborið við fyrir ári síðan, 31% í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og 46% annars staðar á landinu. Á landinu öllu eru um 3.300 íbúðir til sölu þar af eru um 1.200 þeirra nýjar íbúðir.“ Fimmta hver ný íbúð til sölu tveggja herberja eða minni Ennfremur segir í skýrslunni að ef rýnt sé í samsetningu framboðs nýrra íbúða komi í ljós að einungis um 20 prósent nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu séu með tvö eða færri herbergi. „Þetta er markverð breyting frá samsetningu nýrra íbúða í byrjun heimsfaraldurs, en þá var hlutfallið nær helmingi hærra eða um 30%. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðis og annars staðar á landinu er framboð nýrra lítilla íbúða óverulegt. HMS Hrein ný íbúðalán ekki lægri síðan árið 2016 Hrein ný íbúðalán fjármálastofnana til heimila í fyrra námu 126 ma. kr. og hafa á föstu verðlagi ekki verið minni síðan árið 2016. Hrein ný útlán drógust meira saman en velta á fasteignamarkaði. Frá árinu 2021 drógust hrein ný útlán á föstu verðlagi saman um 57% en kaupsamningum fækkaði um 34%. Á sama tíma hefur íbúðum í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgað hraðar en íbúðum í eigu einstaklinga sem eiga eina íbúð. Hafa verður í huga að útlán til þessara aðila eru ekki inni í framangreindum tölum. HMS Nánast engin ný útlán til mannvirkjagerðar Ný lán bankanna til bygginga- og mannvirkjagerðar voru mjög lítil eða 33 milljónir í desembermánuði. Til samanburðar voru lánin tæpir 9 ma. kr. í desember 2022. Að jafnaði höfðu bankarnir lánað til byggingariðnaðarins um 4,5 ma. kr. á mánuði allt síðasta ár. Leita þarf til ágústmánaðar 2019 til að finna jafn lítil útlán til byggingarfyrirtækja í einum mánuði. Útistandandi lán banka til byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar lækkuðu um 1,2 ma. kr. í desember og var það í fyrsta skipti síðan á haustmánuðum 2021 sem þau lækka milli mánaða. Tölur um útlán til byggingaraðila benda til þess að ekki sé verið að fjármagna ný verkefni og fjármögnun vegna nýrra íbúða sem seljast sé að greiðast upp. Uppgreiðsluhraði framkvæmdafjármögnunar ræðst m.a. af sölutíma fasteigna. Sölutími fasteigna var um einn mánuður á haustið 2021 fór upp í fimm mánuði á vormánuðum 2023 en er nú um fjórir mánuðir.“
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið Álagning á áfengi mest á Íslandi Viðskipti innlent Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Stefna á Coda stöð við Húsavík Viðskipti innlent Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent Setur háa tolla á Evrópu Viðskipti erlent Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Álagning á áfengi mest á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Sjá meira