Það var troðfullt út úr dyrum á opnun á nýju rými hjá Gallery Porti á laugardaginn. Listunnendur létu sig ekki vanta og var erfitt að næla sér í verk á opnuninni.Þórsteinn Svanhildarson
Það var margt um manninn í opnun á nýju rými Gallery Ports síðastliðinn laugardag. Nokkrar stórstjörnur íslenskrar myndlistar stóðu þar á samsýningunni Lost Track en gestir biðu í röð eftir að komast inn og fullt var út úr dyrum.
Í fréttatilkynningu segir:
„Gallery Port hefur flutt sig um set af Laugaveginum yfir á Hallgerðargötu 19-23 á Kirkjusandi. Laugardaginn 2. mars opnaði þar fyrsta sýningin, samsýningin Lost Track. Þar koma saman myndlistarmennirnir Baldur Helgason, Claire Paugam og Loji Höskuldsson.
Þessi fyrsta opnun á nýjum stað var með þeim fjölsóttustu sem Gallery Port hefur haldið en fyrir opnun var á þriðja tug gesta fyrir utan að bíða eftir að komast á sýninguna.“
Fjöldinn allur af fólki mætti á opnun samsýningarinnar Lost Track.Þórsteinn Svanhildarson
Það er mikill áhugi á myndlist í dag enda var það svo að fyrir opnun voru öll verk eftir Loja Höskuldsson seld. Sömuleiðis var búið að taka frá og kaupa verk Baldurs Helgasonar en Baldur á verk í mörgum einkasöfnum bæði hérlendis og erlendis. Hann var viðmælandi í Vísisþættinum Kúnst í fyrra sem má sjá hér:
„Hin franska Claire Paugam var kontrastinn á milli þeirra Baldurs og Loja en hún vinnur mikið með ljósmyndir og innsetningar, en hún er mjög efnileg ung listakona sem hlaut meðal annars Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna 2020.
Fullt hús og mikil veisluhöld og það er óhætt að segja að mikið líf hafi færst yfir Kirkjusandinn við þessa viðbót að fá Gallery Port í hverfið,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Verk Claire Paugam.Þórsteinn Svanhildarson
Sýningin stendur yfir til miðvikudagsins 27. mars en þá er lokahóf sýningarinnar, sem verður kynnt nánar síðar.
Frá vinstri: Steingrímur Eyfjörð, Ármann Reynisson, Sölvi Snær Magnússon og Elías Guðmundsson.Þórsteinn SvanhildarsonNatka Klimowicz skenkir í glös.Þórsteinn SvanhildarsonFjölbreyttar kynslóðir sóttu opnun hjá Gallery Porti.Þórsteinn SvanhildarsonJón Valur og Guðmundur Jónsson eigandi Listamenn, gallerí og innrömmunarverkstæði.Þórsteinn SvanhildarsonBronsstytta Baldurs Helgasonar vakti lukku gesta á ólíkum aldri.Þórsteinn SvanhildarsonAðalsteinn Jörundsson og Helgi Örn Pétursson.Þórsteinn SvanhildarsonSmjör og neftóbak er meðal viðfangsefna í verki Loja Höskuldssonar í bakgrunni.Þórsteinn SvanhildarsonFatahönnuðurinn og listakonan Ragna Bjarnadóttir fyrir miðju eflaust á listrænu og skemmtilegu spjalli við Patty Spyrakos og fleiri.Þórsteinn SvanhildarsonBaldur Helgason myndlistarmaður ræðir við gesti hér til vinstri. Búningahönnuðurinn Tanja Huld Levý lét sig ekki vanta og mætti með kærastanum sínum Jökli Jónssyni.Þórsteinn SvanhildarsonMargt var um manninn á opnuninni. Í bakgrunni má sjá verk eftir Baldur Helgason.Þórsteinn SvanhildarsonLoji Höskuldsson myndlistarmaður á spjalli við Brynhildi Bolladóttur og aðra sýningargesti.Þórsteinn SvanhildarsonGestir voru mættir fyrir opnun og biðu eftir því að komast inn.Þórsteinn SvanhildarsonFólk streymdi stöðugt inn á meðan að opnuninni stóð.Þórsteinn SvanhildarsonSkarphéðinn Bergþóruson, einn eiganda Gallery Ports, opnar fyrir fyrstu gestum.Þórsteinn SvanhildarsonAð sögn Portsins var mjög góð stemning á opnuninni. Þórsteinn SvanhildarsonListamaðurinn Narfi Þorsteinsson virðir fyrir sér málverk Baldurs Helgasonar.Þórsteinn SvanhildarsonMyndlistarmennirnir Sigurður Ámundason og Magnús Orri Magnússon.Þórsteinn SvanhildarsonRagnheiður Sigurðardóttir Bjarnason og Dagný Berglind Gísladóttir.Þórsteinn SvanhildarsonBaldur Helgason spjallar við Anton Lyngdal.Þórsteinn SvanhildarsonMörður Áslaugarson og Snorri Ásmundsson voru í góðu stuði.Þórsteinn SvanhildarsonMenningarmaðurinn Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams var meðal gesta.Þórsteinn SvanhildarsonEyjólfur Pálsson og arkítektinn Ásmundur Hrafn Sturluson létu sig ekki vanta.Þórsteinn SvanhildarsonAð sögn Portsins var mjög góð stemning á opnuninni.Þórsteinn SvanhildarsonListamaðurinn Steingrímur Eyfjörð var í góðum félagsskap.Þórsteinn SvanhildarsonSigrún Karls Kristínardóttir og Björn Þór Björnsson.Þórsteinn SvanhildarsonSýningin stendur til 27. mars næstkomandi.Þórsteinn Svanhildarson