Íslandsbanki gerði tilboð í TM með fyrirvara um hækkun hlutafjár
![Linda Jónsdóttir er formaður stjórnar Íslandsbanka en íslenska ríkið fer með 42,5 prósenta hlut í bankanum.](https://www.visir.is/i/FC6CE2C3E169C8D814338A8AC111E0824C0AD689F7BE2426D25498CF80E221DB_713x0.jpg)
Þegar Íslandsbanki gerði skuldbindandi tilboð í TM þá var það meðal annars gert með því skilyrði að hluthafar, þar sem ríkissjóður er langsamlega stærstur, myndu samþykkja í kjölfarið að hækka hlutafé bankans til að standa undir kaupverðinu. Viðskiptin hefðu verið stærri í hlutfalli við eigin fé bankans borið saman við Landsbankann sem var með enga fyrirvara um samþykki hluthafafundar þegar tilboðið hans var samþykkt.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/AEC90CB116E01CC954BE892D2A360D934A63E2922DBB604821465AEFFE7240CE_308x200.jpg)
Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig
Bankaráð Landsbankans segir Bankasýsluna hafa frá sumrinu 2023 hafa verið vel meðvitaða um áhuga bankaráðs á tryggingamarkaðnum og eftir atvikum kaupum á tryggingafélaginu TM. Samskiptin hafi farið fram í tölvupóstum, á fundum og símtölum. Helsta óvissan virðist vera um það sem fram kom í óformlegu símtali formanns bankaráðs og forstjóra Bankasýslunnar í desember.
![](https://www.visir.is/i/540D607DB22FB4CB5A375D0F6596018DBD556EE10B76B76E3A6830735EEB616C_308x200.jpg)
Telur að Kvika greiði út um fimmtán milljarða við söluna á TM
Söluverð Kviku á TM var í samræmi við væntingar hlutabréfagreinenda sem telur að Kvika verði „sterkari“ eftir söluna en segir slæmt að fjárþurfa ríkissjóður sé með þessum kaupum Landsbankans að „dæla peningum inn í hagkerfið með vinstri hendinni.“ Sjóðstjóri reiknar með að Kvika muni greiða út um fimmtán milljarða samhliða sölunni í formi arðgreiðslna eða endurkaupum á eigin bréfum og hluthafar fái því ríflegan hluta söluverðsins til sín.