Þjálfari Jóhanns segir dómgæsluna í deildinni ekki hafa verið nógu góða Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. apríl 2024 08:34 Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Burnley, fékk að líta beint rautt spjald um liðna helgi. Zac Goodwin/PA Images via Getty Images Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Burnley, segir að dómgæslan í ensku úrvalsdeildinni hafi einfaldlega ekki verið nógu góð á tímabilinu.
Kompany fékk að líta rautt spjald í leik Burnley og Chelsea um helgina þar sem liðin gerðu 2-2 jafntefli. Þjálfarinn fékk rauða spjaldið fyrir að mótmæla vítaspyrnudómi sem leiddi til þess að Lorenz Assignon, leikmaður Burnley, var sendur af velli. Alls hafa leikmenn Burnley fengið að líta sex rauð spjöld á tímabilinu, fleiri en nokkuð annað lið í ensku úrvalsdeildinni. Kompany segist þó ekki ætla að fara að vera feiminn við það að segja sína skoðun og að hann beri það ekkert fyrir sig að fá sektir. „Ég hef sagt það við dómarana sjálfa að dómgæslan á tímabilinu hefur ekki verið nógu góð,“ sagði Kompany. „Ég hef sagt það á uppbyggilegan hátt og skil það vel að þetta er ekki auðvelt starf. Það sem þeir þurfa að þola er ótrúlegt og það hefur aldrei verið meiri pressa á dómurunum.“ „Eftir að VAR bættist við og fleiri fóru að hafa skoðanir ásamt því að það bætast við fleiri dómarar gerir þetta ekki auðvelt,“ bætti Kompany við. Burnley situr í næst neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 18 stig eftir 30 leiki, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Enski boltinn Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Sjá meira