Fótbolti

Stúdentaóeirðir og tára­gas valda al­gjörri ó­vissu hjá liði Elíasar

Sindri Sverrisson skrifar
Leikmenn Midtjylland náðu aðeins að æfa í smástund á leikvanginum í Tirana en þar standa yfir miklar stúdentaóeirðir.
Leikmenn Midtjylland náðu aðeins að æfa í smástund á leikvanginum í Tirana en þar standa yfir miklar stúdentaóeirðir. Samsett/Getty/Midtjylland

Danska knattspyrnuliðið Midtjylland gat aðeins æft í örfáar mínútur í dag á Air Albania-leikvanginum í Tirana, höfuðborg Albaníu, áður en tæma þurfti völlinn vegna táragass.

Þúsundir albanskra nema mótmæltu sinnuleysi ríkisstjórnar Albaníu í menntamálum í gær og í dag með ofbeldisfullum hætti. Þeir hafa meðal annars kveikt í byggingu menntamálaráðuneytisins, gert árásir á fleiri ráðuneyti og krafist afsagnar forsætisráðherrans Edi Rama.

Midtjylland, lið Elíasar Rafns Ólafssonar, er í Tirana vegna leiks við heimamenn í Egnatia á morgun í Sambandsdeild Evrópu. Elías er frá keppni eftir að hafa meiðst á nýra rétt fyrir síðustu landsleikjatörn.

Midtjylland-menn áttu að fá að æfa á Air Atlanta-leikvanginum en fengu bara að gera það í stutta stund áður en táragas setti allt í uppnám.

Leikmenn Egnatia áttu að fá æfingu á vellinum síðar um daginn en alfarið var hætt við þær áætlanir vegna mótmælanna.

Nú ríkir jafnframt algjör óvissa um það hvort leikurinn fari fram á morgun og boðuðu fulltrúar UEFA til neyðarfundar vegna málsins í kvöld samkvæmt albönskum miðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×