Innlent

Arnar, Ást­þór, Baldur, Halla og Jón komin með 1.500 með­mælendur

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Arnar, Ástþór, Baldur, Halla og Jón eru þau einu sem hafa gefið út að þau hafi náð tilskildum fjölda meðmælenda.
Arnar, Ástþór, Baldur, Halla og Jón eru þau einu sem hafa gefið út að þau hafi náð tilskildum fjölda meðmælenda. vísir

Arnar Þór Jónsson, Ástþór Magnússon, Baldur Þórhallsson, Halla Tómasdóttir og Jón Gnarr eru einu forsetaframbjóðendurnir sem komnir eru með tilskilinn fjölda meðmælenda, eftir því sem næst verður komist.

Rafræn meðmælasöfnun hófst 1. mars síðastaliðinn en til að eiga kost á þátttöku í forsetakosningunum þurfa frambjóðendur að safna að lágmarki 1.500 meðmælendum og að hámarki 3.000.

Gerð er krafa um 1.233 meðmælendur í Sunnlendingafjórðungi, 56 í Vestfirðingafjórðungi, 157 í Norðlendingafjórðungi og 54 í Austfirðingafjórðungi.

Safna má meðmælum bæði á netinu og skriflega.

Hvorki Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, né Sigríður Hrund Pétursdóttir fjárfestir hafa náð að safna 1.500 undirskriftum, enn sem komið er. Framboð Helgu er þó bjartsýnt á að það náist á næstu dögum og þá segir Harpa B. Hjálmtýsdóttir, samskiptastjóri Sigríðar, nægan tíma til stefnu.

Framboðsfresturinn rennur út 26. apríl 2024.

Beðið eftir Katrínu

Guðmundur Felix Grétarsson, „handhafi“ eins og hann hefur kallað sig, bættist í hóp yfirlýstra frambjóðenda í vikunni og þá hefur Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hafið undirskriftasöfnun.

Steinunn hafði áður gefið út að hún myndi bjóða sig fram ef Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra færi fram. 

Ákvörðunar forsætisráðherra er beðið með mikilli eftirvæntingu en mörgum þykir pólitísk atburðarás vikunnar benda sterklega til þess að hún muni sækjast eftir forsetaembættinu.

Frambjóðendurnir eru þeir einu sem hafa aðgang að upplýsingum um fjölda meðmælenda. Fjölmiðlar geta þannig ekki fylgst með söfnun undirskrifta nema með því að hafa samband við framboðin.

Eins og stendur eru 65 skráðir frambjóðendur á island.is en Vísir hefur áður greint frá því að margir hafi lent í því að stofna undirskriftasöfnun þegar þeir ætluðu að mæla með frambjóðanda.

Uppfært:

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að náðist í framboð Arnars Þórs Jónssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×