Skoðun

Hvers vegna er mikil­vægt að finna kol­efnis­spor á inn­kaupum fyrir­tækja?

Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Að henda reiður á kolefnisspor fyrirtækja hefur verið mikil vinna og oft vaxið stjórnendum í augum. Kostnaðurinn við greiningar á kolenfnisspori innkaupa er mikill og sérstaklega þegar það þarf að tengja hvern birgja sem verslað er af við einhver kerfi, útvista vinnunni eða handvirkt reikna út hvert kolefnisspor innkaupanna með misjafnlega nákvæmum hætti. Samanburður milli ára verður því oft ónákvæmur og gríðarlega kostnaðarsamur.

Að finna og minnka kolefnisspor fyrirtækja er engu að síður orðið einn af lykilþáttum í baráttunni við loftslagsbreytingar. Á Íslandi, þar sem umhverfisvernd og sjálfbærni eru djúpt rótgróin í samfélaginu, er mikilvægi þess að skilja og stjórna kolefnisspori fyrirtækja gríðarlega mikið.

Flest öll fyrirtæki vilja standa sig vel og við viljum jafnframt sinna þessum málum vel en það er svo ofur skiljanlegt að staldra við þessi mál þegar þau eru kostnaðarsöm og flókin. Ísland hefur verið framarlega í þessu grænasta maraþoni í heimi með okkar hreinu orku og við viljum halda áfram að vera í fremstu röð í þessum málum.

Lækkun á losun gróðurhúsalofttegunda

Með því að greina og stýra kolefnisspori innkaupa geta fyrirtæki beint stefnu sinni að því að velja vörur og þjónustu sem valda minni mengun. Þar skiptir miklu máli að geta greint vel það sem stundum er kallað umfang 3 því þar er um að ræða innkaup sem hægt er að stýra með ábyrgð á sjálfbærnimálum í huga. Þetta eru auðvitað mikilvægustu rökin og við viljum öll búa þannig um hnútana að börnin okkar geti notið þess að búa á jörðinni eins og fyrri kynslóðir hafa.

Betri ímynd og samkeppnisforskot

Neytendur, bæði á Íslandi og um allan heim, eru sífellt meðvitaðri um umhverfisáhrif kaupa sinna. Fyrirtæki sem taka ábyrgð á sínu kolefnisspori og skuldbinda sig til þess að vera sjálfbær hafa betri ímynd og geta skapað sér samkeppnisforskot.

Lög og reglugerðir

Á Íslandi, eins og í mörgum öðrum löndum, eru stjórnvöld að setja strangari reglur um umhverfisáhrif fyrirtækja. Að vera framúrskarandi í að greina og lækka kolefnisspor sitt getur hjálpað fyrirtækjum að hlíta slíkum reglugerðum og forðast mögulegar sektir.

Að fylgjast með kolefnisspori innkaupa þíns fyrirtækis er því svolítið eins og að hlaupa maraþon fyrir móður jörð - það er bæði áskorun en ávinningurinn er mikill. Með því að vera framúrskarandi í grænum aðgerðum getur þitt fyrirtæki ekki aðeins hjálpað til við að búa til heilbrigða samfélag, heldur einnig staðið upp úr í hópi og náð athygli neytenda sem vilja gera rétt. Og hver veit? Kannski endar þitt fyrirtæki á því að spara sér mikla fjármuni þegar ný lög um þessi mál taka gildi því að þið spiluðuð rétt úr spilunum í dag.

Höfundur er forstöðuman gæða-og innkaupalausna Origo.




Skoðun

Sjá meira


×