Kjartan Atli sló metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2024 12:00 Kjartan Atli Kjartansson var ánægður með leik sinna manna í sigri á bikarmeisturum Keflavíkur í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Álftnesingar settu nýtt met í úrslitakeppni karla í körfubolta í gær með því að vinna stærsta sigurinn í fyrsta heimaleik félags í sögu úrslitakeppninnar. Álftanesliðið vann í gærkvöldi 21 stigs sigur á Keflavík, 76-55, og jafnaði einvígi liðanna í átta liða úrslitum Subway deildar karla. Metið var áður í eigu nágranna þeirra í Stjörnunni. Stjarnan vann tuttugu stiga sigur á Snæfelli í fyrsta heimaleik sínum í úrslitakeppni var í átta liða úrslitunum 2009. Stjarnan jafnaði þá metin í einvígi á móti Snæfelli með 99-79 sigri. Þá þurfti bara að vinna tvo leiki í átta liða úrslitunum og Snæfell fór áfram eftir sigur á Stjörnumönnum í oddaleik í Stykkishólmi. Svo skemmtilega vill til að Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftanesliðsins í dag, var leikmaður Stjörnuliðsins í umræddum leik. Kjartan skoraði reyndar bara tvö stig í leiknum en stal þremur boltum, tók fimm fráköst og Stjarnan vann með 14 stigum þær rétt tæpu 23 mínútur sem hann spilaði. Justin Shouse var atkvæðamestur í Stjörnuliðinu með 28 stig, 7 fráköst, 7 stoðsendingar og 5 stolna bolta en Jovan Zdravevski skoraði 25 stig. Kjartan Atli sló því í gær metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður fimmtán árum fyrr.
Álftanesliðið vann í gærkvöldi 21 stigs sigur á Keflavík, 76-55, og jafnaði einvígi liðanna í átta liða úrslitum Subway deildar karla. Metið var áður í eigu nágranna þeirra í Stjörnunni. Stjarnan vann tuttugu stiga sigur á Snæfelli í fyrsta heimaleik sínum í úrslitakeppni var í átta liða úrslitunum 2009. Stjarnan jafnaði þá metin í einvígi á móti Snæfelli með 99-79 sigri. Þá þurfti bara að vinna tvo leiki í átta liða úrslitunum og Snæfell fór áfram eftir sigur á Stjörnumönnum í oddaleik í Stykkishólmi. Svo skemmtilega vill til að Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftanesliðsins í dag, var leikmaður Stjörnuliðsins í umræddum leik. Kjartan skoraði reyndar bara tvö stig í leiknum en stal þremur boltum, tók fimm fráköst og Stjarnan vann með 14 stigum þær rétt tæpu 23 mínútur sem hann spilaði. Justin Shouse var atkvæðamestur í Stjörnuliðinu með 28 stig, 7 fráköst, 7 stoðsendingar og 5 stolna bolta en Jovan Zdravevski skoraði 25 stig. Kjartan Atli sló því í gær metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður fimmtán árum fyrr. Stærsti sigur í fyrsta heimaleik félags í úrslitakeppni 1984-2024: 21 stig Álftanes á móti Keflavík 2024 (76-55) 20 stig Stjarnan á móti Snæfelli 2009 (99-79) 16 stig KR á móti Val 1984 (87-71) 15 stig Valur á móti KR 1984 (76-61) 12 stig Skallagrímur á móti Keflavík 1993 (80-68) 11 stig ÍA á móti Grindavík 1994 (91-80) 9 stig KFÍ á móti Njarðvík 1998 (96-87)
Stærsti sigur í fyrsta heimaleik félags í úrslitakeppni 1984-2024: 21 stig Álftanes á móti Keflavík 2024 (76-55) 20 stig Stjarnan á móti Snæfelli 2009 (99-79) 16 stig KR á móti Val 1984 (87-71) 15 stig Valur á móti KR 1984 (76-61) 12 stig Skallagrímur á móti Keflavík 1993 (80-68) 11 stig ÍA á móti Grindavík 1994 (91-80) 9 stig KFÍ á móti Njarðvík 1998 (96-87)
Subway-deild karla UMF Álftanes Keflavík ÍF Stjarnan Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira