Glódís Perla og stöllur enn taplausar á toppnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. apríl 2024 19:31 Glódís Perla fagnar með liðsfélögum sínum. @FCBfrauen Það fær einfaldlega ekkert Þýskalandsmeistara Bayern München stöðvað í þýsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Glódís Perla Viggósdóttir stóð vaktina í vörn liðsins þegar það vann Werder Bremen 3-0 í kvöld.
Glódís Perla hefur verið sem klettur í vörn liðsins á leiktíðinni en liðið hefur aðeins fengið á sig sex mörk í 19 deildarleikjum til þessa. Þá hafa varnarmenn liðsins verið duglegir við að koma sér á blað og var það hin sænska Mia Eriksson sem braut ísinn í kvöld snemma í síðari hálfleik. Jovana Damnjanović tvöfaldaði forystu Bayern á 57. mínútu og Georgia Stanway bætti við þriðja markinu þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Gestirnir höfðu fengið vítaspyrnu þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leiksloka en spyrna Sophie Weidauer fór forgörðum. Lokatölur 3-0 og lék Glódís Perla allan leikinn að venju. Eftir sigur kvöldsins er Bayern með 51 stig á toppi deildarinnar með sjö stigum meira en Wolfsburg þegar þrjár umferðir eru eftir. Næsti leikur liðsins er úti gegn Bayer Leverkusen og gæti Bayern tryggt sér titilinn með sigri þar.
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Fótbolti Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Sjá meira