Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. maí 2024 15:24 Thelma er klár í slaginn. Eygló Gísladóttir Thelma Thorarensen hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Keahótelum ehf. Thelma mun, sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, stýra starfsemi tíu hótela félagsins sem staðsett eru í Reykjavík og á landsbyggðinni.
Í tilkynningu frá Keahótelum segir að Thelma hafi viðamikla reynslu í hótel- og veitingahúsarekstri. Hún var stjórnandi hjá Íslandshótelum til fjölda ára og hafi þar komið að opnun stærsta hótels Íslands sem aðstoðarhótelstjóri og svo tekið við stöðu hótelstjóra. Thelma hafi m.a. stýrt stærstu hótelum landsins ásamt veitingastöðum og ráðstefnusölum, setið í fagnefndum og komið að ýmsum stefnumótunarverkefnum. Frá árinu 2020 hafi hún einnig starfað sem kennari í hótel- og veitingahúsarekstri við Opna Háskólann í Reykjavík, en það nám sé í samstarfi við César Ritz háskólann í Sviss. Áður hafi Thelma gegnt stöðu siðameistara hjá sendiráði Bandaríkjanna hér á landi. „Framúrskarandi gestrisni og hótel- og veitingahúsarekstur hefur alla tíð verið Thelmu hugleikinn. Hún hefur starfað í geiranum í rúm tuttugu ár. Thelma lauk BA gráðu í alþjóðaviðskiptum í hótel og ferðamálarekstri árið 2010. Áður lauk hún diplómanámi í hótel- og veitingahúsarekstri frá Menntaskólanum Kópavogi í samstarfi við César Ritz,“ segir í tilkynningunni. „Keahótel er leiðandi hótelkeðja sem samanstendur af tíu hótelum sem staðsett eru víðs vegar um landið, flest í Reykjavík en einnig Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Katla í Vík í Mýrdal og nýjasta viðbótin, Grímsborgir í Grímsnesi.“
Hótel á Íslandi Vistaskipti Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Viðskipti innlent Ísold ráðin markaðsstjóri Viðskipti innlent Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Viðskipti innlent Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Frá Bændasamtökunum til Samorku Viðskipti innlent Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Fleiri fréttir Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Sætanýtingin aldrei verið betri í október ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn Aukning í ferðalögum til landsins Breytingar í framkvæmdastjórn Origo Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Akademias tekur yfir rekstur Avia Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Sjá meira