Fyrir skemmstu greindi Vísir frá því að Rory væri að skilja en tímasetningin kom heldur betur á óvart þar sem aðeins voru nokkrir dagar í PGA-meistaramótið í golfi þegar tíðindin bárust. Nú virðist tíðin önnur þar sem hjónin eru tilbúin að lifa áfram í sátt og samlyndi.
Samkvæmt frétt BBC um málið þá hafa hjónin dregið til baka umsókn sína um skilnað og því nær það ekki lengra.
„Undanfarna daga hafa verið háværir orðrómar um einkalíf mitt, það er óheppilegt og að svara hverjum orðrómi væri kjánalegt,“ sagði Rory um einkalíf sitt. Hann hélt svo áfram:
„Undanfarnar vikur höfum við Erica komist að því framtíð okkar er best varið saman sem fjölskyldu. Sem betur fer höfum við leyst ágreining okkar og hlakkar okkur til komandi tíma.“
Rory og Erica giftu sig árið 2017 og eiga eitt barn saman.