Víkingar án tveggja sterkra leikmanna í Meistaradeildinni á morgun Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. júlí 2024 23:30 Aron Elís verður hvergi sjáanlegur á vellinum annað kvöld. Vísir/Hulda Margrét Íslands- og bikarmeistarar Víkings hefja leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu annað kvöld þegar Shamrock Rovers mætir í Víkina. Tveir af máttarstólpum Víkinga verða fjarri góðu gamni.
Leikurinn hefst klukkan 18.45 á morgun, þriðjudag, og verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Hvorki Aron Elís Þrándarson né Davíð Örn Atlason verða í liði Víkings ef marka má orð Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara liðsins, í samtali við mbl.is í dag. Aron Elís sneri til baka í Víkina um mitt síðasta sumar og skoraði alls 9 mörk í 13 leikjum þegar Víkingar tryggðu sér Íslands- og bikarmeistaratitilinn. Þessi öflugi miðjumaður hefur haldið áfram að hrella varnir andstæðingsins á þessari leiktíð og er kominn með fjögur mörk. Ljóst er að um mikið högg er að ræða fyrir Víking en Aron er án efa einn af betri leikmönnum Bestu deildarinnar. Hægri bakvörðurinn Davíð Örn hefur leikið eins og engill bæði í ár og á síðustu leiktíð. Hann á tæplega 250 leiki að baki fyrir Víkinga og einnig ljóst að hans verður sárt saknað á morgun. Aðrir leikmenn Víkinga eru klárir í slaginn og verður áhugavert að sjá hvernig Arnar stillir upp gegn Írunum í Shamrock Rovers annað kvöld. Allt í beinni á Stöð 2 Sport.
Fótbolti Íslenski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira