Forstjóri lífvarðasveitarinnar segir af sér vegna banatilræðisins Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 23. júlí 2024 15:14 Cheatle hyggst segja af sér. AP Kimberly Cheatle forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service segist ætla að láta af embætti í kjölfar banatilræðisins á hendur Donald Trump fyrr í mánuðinum. Hún viðurkennir mistök við öryggisgæslu á fundinum.
Þetta herma heimildir CBS. Rannsókn á frammistöðu lífvarðasveitarinnar á kosningafundinum var sett af stað eftir banatilræðið á kosningafundi Trump í Pennsylvaníu þann 13. júní. Einn lést í árásinni og tveir slösuðust illa. Trump slapp naumlega með áverka á eyra. Lögreglumenn og öryggisgæslumenn frá mörgum mismunandi stofnunum voru á staðnum þegar fundurinn var haldinn og samkvæmt heimildum CBS var öryggisgæsla látin vita af grunsamlegum mannaferðum allt að tuttugu mínútum áður en árásin var gerð. Cheatle reindi frá því að hún hefði verið ábyrg fyrir því að öryggisstöðlum yrði framfylgt á fundinum þegar hún kom fram á fulltrúaþingi Bandaríkjanna í gær. Þá sagði hún að um verulegan brest í verkferlum hafi verið að ræða. „Eina verkefni lífvarðasveitarinnar er að vernda leiðtoga okkar þjóðar. Þann 13. júlí mistókst okkur,“ sagði hún jafnframt. Verkefni öryggisþjónustunnar (Secret service) er tvíþætt; annars vegar að gæta öryggis forseta Bandaríkjanna, varaforseta, fyrrverandi forseta og erlendra tignargesta og hins vegar að rannsaka efnahagsbrot.
Bandaríkin Donald Trump Öryggis- og varnarmál Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Fleiri fréttir Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Sjá meira