Play hefur tilkynnt um skipulagsbreytingar á framkvæmdastjórn og stjórnendum sem taka gildi frá og með næstu mánaðamótum. Breytingarnar eru í tilkynningu sagðar hluti af stöðugri vinnu fyrirtækisins við að þróa og bæta reksturinn. Play tapaði milljarði króna á síðasta ársfjórðungi.
Auk Arnars Más lætur Georg Haraldsson af störfum sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs. Ólafur Þór Jóhannesson hætti sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs í lok apríl. Þrír framkvæmdastjórar hafa því lokið störfum hjá félaginu síðan Birgi Jónssyni var sagt upp störfum sem forstjóra í apríl og Einar Örn Ólafsson stjórnarformaður tók við keflinu.
Andri hækkaður í tign
Fram kemur að Arnar Már hafi þegar látið af störfum. Hann var ráðinn aðstoðarforstjóri flugfélagsins Play í byrjun maí meðfram framkvæmdastjórastarfi hjá flugrekstrarsviði. Hann var fyrsti forstjóri Play við stofnun félagsins, varð svo framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs en einbeitti sér svo alfarið að starfi flugstjóra þar til hann sagði upp í árslok 2022. Hann sneri svo aftur í starf framkvæmdastjóra í fyrra, varð aðstoðarforstjóri í maí en er nú hættur hjá Play, öðru sinni.
Andri Geir Eyjólfsson tekur við starfi Arnars Más sem framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs. Andri Geir hefur starfað hjá Play frá stofnun fyrirtækisins árið 2019 sem tæknistjóri en síðastliðið ár hefur hann gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs. Andri Geir hefur fjölbreytta átján ára reynslu af flugrekstri og starfaði áður hjá WOW air sem aðstoðartæknistjóri. Hann hefur einnig gegnt öðrum störfum hjá Air Atlanta, Icelandair og WOW air. Andri lærði flugvirkjun hjá TEC Aviation í Danmörku.
Sigurður bætir hlutverki Georgs á sig
Sigurður Örn Ágústsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, verður framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar- og upplýsingatæknisviðs (CDO). Georg Haraldsson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs, lætur af störfum en verður félaginu til ráðgjafar næstu mánuði.
Sigurður Örn á að baki langan feril í flugrekstri og hefur verið forstjóri og stjórnarformaður Bláfugls ásamt því að sitja í stjórn Avion Express. Hann er með MBA-gráðu frá Katz Graduate School of Business (University of Pittsburgh).
Samhliða þessu hefur Ramunas Kurkutis verið ráðinn forstöðumaður upplýsingatæknisviðs og verður staðsettur á skrifstofu Play í Vilníus í Litháen. Ramunas er með yfir tveggja áratuga reynslu af stjórnunarstörfum í upplýsingatækni hjá alþjóðlegum fyrirtækjum. Hann býr yfir víðtækri reynslu í flug-, orku- og fjármálageiranum.
Ný skrifstofa forstjóra og tveir nýir sviðsstjórar
Stofnuð hefur verið skrifstofa forstjóra. Tvö svið verða til innan hennar. Annars vegar lögfræði- og mannauðssvið sem Jóhann Pétur Harðarson mun veita forstöðu. Hins vegar samskipta- og markaðsvið sem Nadine Guðrún Yaghi mun veita forstöðu.
Jóhann Pétur hefur verið lögfræðingur félagsins frá árinu 2021 og hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífi. Hann er með cand. jur. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá NYU, Stern School of Business. Nadine Guðrún hefur starfað sem forstöðumaður samskipta- og þjónustu hjá Play frá árinu 2021. Þar áður starfaði hún sem frétta- og dagskrárgerðarkona til fjölda ára. Hún er með cand. jur. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.
Ný skipan framkvæmdastjórnar Play
Framkvæmdastjórn Play verður því framvegis skipuð sex manns. Þau eru:
- Einar Örn Ólafsson, forstjóri
- Ruta Dabašinskaitė-Vitkė, fjármálastjóri
- Andri Geir Eyjólfsson, framkvæmdastjóri flugrekstrarsvið
- Daníel Snæbjörnsson, framkvæmdastjóri leiðakerfis og áætlunarsviðs
- Sonja Arnórsdóttir, framkvæmdastjóri tekna- og þjónustu
- Sigurður Örn Ágústsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar- og upplýsingatækni
„Ég vil þakka Arnari Má og Georgi fyrir þeirra framlag á undanförnum árum og óska þeim alls hins besta. Andri Geir býr yfir mikilvægri reynslu af flugrekstri Play og hefur verið algjör lykilmaður í félaginu frá stofnun. Flugrekstrarsviðið verður því í góðum höndum með Andra Geir í fararbroddi. Fram undan eru spennandi tímar hjá Play, þar sem nýtt úrvalsteymi stjórnenda mun leiða félagið áfram til enn frekari árangurs,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.
Play tapaði rúmlega einum milljarði á síðasta ársfjórðungi en félagið kippti afkomuspá sinni fyrir árið úr gildi fyrr í mánuðinum. Einar Örn forstjóri segir stöðu félagsins þó trausta og vísaði í tilkynningu með uppgjöri á dögunum til þess að lausafjárstaða félagsins nemur um sjö milljörðum íslenskra króna.