Telja minni líkur á samdrætti í ferðaþjónustu með aukinni kortaveltu Kjartan Kjartansson skrifar 16. ágúst 2024 15:51 Aldrei hefur mælst meiri kortavelta á hvern ferðamann en í júlímánuði. Vísir/Vilhelm Kortavelta erlendra ferðamanna hefur aldrei verið meiri en hún var í júlí samkvæmt uppfærðum tölum Seðlabankans. Greinendur Landsbankans telja þetta benda til þess að staða í ferðaþjónustu sé ekki eins slæm og af hefur verið látið og minni líkur á samdrætti.
Erlend kortavelta jókst um 3,6 prósent á föstu gengi fyrstu sjö mánuði ársins samkvæmt nýjum tölum sem Seðlabankinn hefur birt og byggja á uppfærðri aðferð. Breytingin er veruleg frá eldri gögnum sem bentu til 7,3 prósent samdráttar á fyrri helmingi ársins. Í júlí jókst kortaveltan um 3,8 prósent á milli ára á föstu gengi og hefur aldrei mælst meiri í einum mánuði, alls 47,5 milljarða króna. Ennfremur hefur aldrei mælst meiri kortavelta á hvern ferðamann en í júlí. Á móti kom að gistinóttum ferðamanna á skráðum gististöðum fækkaði um fjögur prósent milli ára á fyrri helmingi ársins. Von er á nýjum tölum um gistinætur fyrir júlí í lok mánaðarins. Þrátt fyrir það telja greinendur Landsbankans að þegar litið sé til aukningar kortaveltunnar og 0,5 prósent fjölgunar ferðamanna í júlí á milli ára að júlímánuður hafi verið kröftugur í ferðaþjónustunni. „Þetta bendir til þess að staðan í ferðaþjónustu sé ekki jafn slæm og áður var talið og líkur á samdrætti í greininni eru orðnar minni að okkar mati,“ segir í grein á vefsíðu bankans.
Ferðamennska á Íslandi Efnahagsmál Landsbankinn Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira