Enski boltinn

„Pep Guardiola eyði­lagði fót­boltann“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Áhrif Pep Guardiola á fótboltann verða seint mæld. Skiptar skoðanir eru um ágæti þeirra áhrifa.
Áhrif Pep Guardiola á fótboltann verða seint mæld. Skiptar skoðanir eru um ágæti þeirra áhrifa. Alex Pantling - UEFA/UEFA via Getty Images

Fyrrum markvörðurinn Tim Howard kennir Pep Guardiola, þjálfara Manchester City, um að hafa eyðilagt fótboltann. Of mikil áhersla sé lögð á knattspyrnu eftir höfði hans um allan heim.

Howard var gestur nýrrar bandarískrar útgáfu The Overlap hlaðvarpsins, sem breski miðillinn Sky stendur fyrir. Overlap hefur verið á meðal vinsælli fótboltaþátta heims en kumpánarnir Jamie Carragher, Gary Neville, Ian Wright og Roy Keane hafa verið fastir gestir auk ensku landsliðskonunnar fyrrverandi Jill Scott.

Nú hefur bandarískri útgáfu, sem ber heitið It's Called Soccer , verið hleypt af stokkunum og Howard var þar gestur Carraghers og Neville í fyrsta þætti.

Umræðan sneri meðal annars að nýjum landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, Argentínumanninum Mauricio Pochettino, sem og fráfarandi þjálfara Gregg Berhalter, sem var rekinn í sumar.

Howard er öllum hnútum kunnugur en hann tæplega 400 leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir Manchester United og Everton og var landsliðsmarkvörður Bandaríkjanna um árabil, spilaði 117 landsleiki.

Tim Howard lék 117 landsleiki fyrir Bandaríkin á árunum 2002 til 2017.vísir/getty

„Það sem Gregg Berhalter gerði, ef litið er aftur til minnar kynslóðar, þá var þetta hópur hörkutóla og svo örfárra sem gátu unnið leikina upp á sitt einsdæmi. Hann bjó til trú hjá þessu liði að það gæti spilað góðan bolta fram á við,“ segir Howard um forvera Pochettino í starfi. Fótboltaheimurinn hafi breyst, og ekki endilega til hins betra, síðustu ár.

„En það sem gerðist, sem snerti alla, er að Pep Guardiola eyðilagði fótboltann. Hann hafði þau áhrif að allir halda að þeir geti spilað sóknarbolta. Það er ekki þannig, ekki allir geta það. Þrjú lið í heiminum geta gert það vel,“ segir Howard sem vill sjá afturkall til fortíðar.

„Þú þarft að vera markviss og ákveðinn. Ef litið er á bestu lið Pochettino, þá voru það tvær þéttar fjögurra manna línur og tveir frammi. Þegar liðin sóttu hratt gerðu þeir það með fjórum leikmönnum sem gátu verið skapandi en það mikilvægasta var að vera þéttir til baka,“

„Ef hann getur fundið þessa markvissu og ákveðni getur hann náð fínum árangri,“ segir Howard í þættinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×