Skoðun

Verðugir verðlaunahafar

Stefán Pálsson skrifar

Í liðinni viku var tilkynnt að friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 2024 færu til Nioh Hidankyo, samtaka eftirlifenda kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí. Samtök þessi voru stofnuð árið 1956 í tvíþættum tilgangi. Í fyrsta lagi mátti fólkið sem lenti í árásunum afdrifaríku þola ótrúlega fordóma og útskúfun í japönsku samfélagi. Um þá ljótu sögu er meðal annars fjallað á áhrifamikinn hátt í kvikmyndinni Snertingu sem gerð var eftir samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem sjálfsagt er að hvetja alla til að kynna sér.

Hitt meginmarkmið Nioh Hidankyo var frá upphafi að vekja athygli á ógnum kjarnorkuvopna og hvetja ráðamenn heimsins til að útrýma slíkum vopnum. Samtökin voru stofnuð um það leyti sem kjarnorkukapphlaup risaveldanna var að hefjast fyrir alvöru. Bæði Bandaríkin og Sovétríkin höfðu þróað vetnssprengjur sem voru margfalt öflugari en þær sprengjur sem varpað hafði verið á japönsku borgirnar tvær. Á næstu árum kepptust ríkin tvö við að framleiða sífellt kröftugri vopn og voru tilraunasprengingar þeirra tíðar, með alvarlegum afleiðingum fyrir líf og heilsu milljóna manna á stóru svæði.

Því miður hefur barátta kjarnorkuvopnaandstæðinga sjaldan eða aldrei verið brýnni en nú um stundir. Bandaríkin og Rússland hafa á síðustu árum snúið baki við mörgum af veigamestu afvopnunarsáttmálum Kalda stríðsins, auk þess sem svimandi fjárhæðum er varið til þróunar á nýjum kjarnorkuvopnum. Í þeirri vinnu gæla herstjórnendur sífellt meira við möguleikann á „staðbundinni notkun“ kjarnorkuvopna – líkt og þau geti verið raunhæfur valkostur í hernaði í stað þess að vera álitið örþrifaráð sem líklega myndi leiða til gjöreyðingar mannkyns. Tvö kjarnorkuveldi, Rússland og Ísrael eiga nú í blóðugum styrjöldum sem auðveldlega geta stigmagnast. Þá má ekki gleyma hættunni á að kjarnavopnum verði beitt af misgáningi eða slys verði við umferð þeirra og flutninga. Fyrir Íslendinga er vert að hafa í huga að á hverjum degi sigla kafbátar með kjarnorkuvopn um höfin umhverfis landið.

Friðarverðlaun Nóbels 2024 eru góð áminning um mikilvægi baráttunnar gegn kjarnorkuvopnum. Þar er eitt öflugasta tækið sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum sem nærri 100 ríki hafa undirritað. Í þeim hópi eru því miður engin aðildarríki Nató, enda er bandalagið ekki hvað síst til um kjarnorkuvopn og áskilur sér rétt til að beita þeim að fyrra bragði. Það er sjálfsögð krafa að Ísland skipi sér tafarlaust í sveit þeirra ríkja sem vinna að útrýmingu kjarnorkuvopna.

Höfundur er í miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×