Skoðun

Það er komið nóg

Bozena Raczkowska skrifar

Síðustu þrjá daga tók ég þátt í Así þingi fyrir hönd Eflingar.

Þar var rætt um málefni tengd ástandinu í landinu.

Þetta voru yndislegir þrír dagar - fullir af samtölum, rökræðum og umræðum.

Hins vegar kem ég aftur af þessum fundum með þungan hjarta.

Þungan hjarta yfir ástandið hér á landi því þó ég er upprunalegri frá Póllandi Ísland er landinn mín núna og mér þykkir rosalega vænt um fólkið í landinu .

Ég er sár yfir því mikla óréttlæti sem er í þessu landi - þar sem hinir ríku halda áfram að verða ríkari og stjórnvöld - hvort sem það er núverandi eða það fyrra - setur verndarhlíf yfir þá.

Hvað með okkur - venjulegt fólk sem á ekki milljónir á reikningum sínum og reynir samt að ná endum saman með að vinna stundum 2-3 störf?

Ekkert-,við þurfum að taka afleiðingum mikillar verðbólgu, hvort sem um er að ræða hækkanir á matvörum, afborgunum íbúða eða leigu.

Ég er ekki einu sinni að nefna heilbrigðiskerfið, eða réttara sagt skortinn á því - því hvernig getum við útskýrt mánaðarlanga bið eftir að hitta heimilislækni?

Fólkið eru að neyta allskonar heilbrigðisþjónustu því þau eiga ekki efni í því.

Einhver gæti þá sagt - það er ekki einfalt að stjórna landi - og það á ekki að vera einfalt, heldur verður það að vera áhrifaríkt og þjóna meirihluta landsmanna-því þeim vantar stuðning en ekki rika minnihlutanum .

Við getum verið aðgerðalaus eða loksins sagt að nóg sé komið og sameinast gegn fákeppninni og óréttlætinu.

Ég er heppin að vera í stéttarfélagi Eflingar og Sólveigar Anna-formaður berst eins og hetía fyrir -ekki bara betrum kjarasamningum heldur líka fyrir breytingu á húsnæðisstefnu ríkisins og mörgum öðrum málum sem snerta ekki bara eflingafolkið nema allt samfélag.

Ég veit ekki hvað þarf að gerast til að breyta aðstæðum heiðarlegra vinnandi fólks og ég er ekki bara að tala um eflingafolkið heldur líka um kennarar og hjúkrunarfræðinga,einstæðar mæður, öryrkjum o.s.frv.

Ég veit bara að það er erfiður vegur framundan og við getum ekki gefist upp - við verðum að þrýsta á ráðamenn landsins og mótmæla allt til enda. Það er réttur okkar að hafa þak yfir höfuðið án þess að borga 70% af leigu eða húsnæðiskostnaði. það er réttur okkar að búa við góða heilbrigðisþjónustu og lifa með reisn hugsið, kæru Íslendingar, áður en þið kjósið í lok nóvember látið ekki blekkjast af loforðum stjórnmálamanna.

Bozena Raczkowska




Skoðun

Sjá meira


×