Tilkynnir Wolt sendil til lögreglu fyrir áreitni Lovísa Arnardóttir skrifar 23. október 2024 22:13 Lilja segir skilaboðin algjörlega óviðeigandi. Samsett Lilju Huld Steinþórsdóttur var algjörlega ofboðið á sunnudag þegar dóttur hennar bárust skilaboð frá Wolt sendli eftir að þeim barst matarsending um að hún væri falleg. Hún ætlar að tilkynna manninn til bæði lögreglu og Persónuverndar. Maðurinn hefur verið áminntur af Wolt.
Sendillinn sendi dóttur Lilju tvö skilaboð. Í þeim fyrri byrjaði sendillinn á því að segja verði þér að góðu og svo í öðrum skilaboðum að hún væri „fallegasta stelpa sem hann hefði séð á Íslandi“. Lilja segir ástæðu yfirvofandi tilkynninga til lögreglu og Persónuverndar þá að sendillinn hafi misnotað upplýsingar sem þær hafi látið Wolt fá fyrir sendinguna en einnig hafi hann verið að áreita dóttur hennar. Ekki eina tilvikið Lilja birti færslu í hópnum Mæðratips á mánudag. Þar birti hún skjáskot af skilaboðunum og spurði aðrar konur í hópnum hvort þær hefðu lent í einhverju svipuðu. Viðbrögðin hafa ekki staðið á sér. „Þetta er orðið aðeins of mikið. Ég hef fengið skilaboð frá konum sem kommentuðu ekki undir færsluna. Menn eru að koma og halda því svo áfram. Fara svo að hringja og hætta því ekki. Þetta eru menn sem eru að koma með mat heim til hans,“ segir Lilja í samtali við fréttastofu. Skilaboðin sendi maðurinn stuttu eftir að hann afhendi matarsendinguna.Aðsend Sama dag og hún setti inn færsluna fékk hún símtal frá starfsmanni Wolt sem hafði verið bent á hana. Sjálf segist hún hafa leitað og leitað að númeri til að hringja í til að tilkynna málið en ekkert fundið á heimasíðunni. „Honum fannst þetta alvarlegt og sagði að þessi maður fengi áminningu en var á sama tíma dálítið kjánalegur,“ segir Lilja. Hún segir það sláandi hversu margar konur tóku undir færsluna hennar og lýstu því að hafa lent í svipuðum aðstæðum. „Þær voru að segja frá og taka undir,“ segir Lilja og að í sögunum hafi líka verið að fjalla um leigubílstjóra sem hagi sér með óviðeigandi hætti. Þora ekki að panta lengur frá Wolt Í athugasemdunum má sjá að fjölmargar konurnar hvetja hana til að tilkynna til lögreglunnar og aðrar sem hvetja hana, og aðra, til að hætta að nota Wolt. „Ég hef lent í þessu 2x og þori ekki lengur að panta þaðan því miður 😬 en hef þá tilkynnt í gegnumappið og því verið tekið alvarlega,“ segir ein í athugasemd. „Já ég fór út í innkeyrslu að sækjaaf því þeir funduu ekki hurðina og fékk svona athugasemd, tveir menn saman og ég ein að kvöldi til. Ekkert eðlilega óþægilegt enda aldrei pantað þaðan aftur,“ segir önnur. Þá segir ein frá því að sendill frá Wolt hafi fylgst með henni fyrir utan heimili hennar. „Oj ég lenti í því að einhver ógeðslega creepyy gaur frá woltt var allt í einu mættur inn í íbúð til mín 😳 hebtwtw aldrei pantað þaðan. Þurfti á endanum að fylgja honum að réttri íbúð þannig að hann færi loksins. Ég þurfti að skjótast stuttu seinna að sækja manninn minn, þá beið hann í bílnum sínum fyrir utan íbúðina að fylgjast með mér.“ Uppfært 24.10.2024 klukkan 17:46 Í svari til fréttastofu vegna málsins sagði Christian Kamhaug, fjölmiðlafulltrúi Wolt, að þeim hafi verið tilkynnt um áreitni af hálfu sendla af viðskiptavinum. Þau harmi það og taki það mjög alvarlega. Þá biðli þau til viðskiptavina að tilkynna slíka hegðun til fyrirtækisins í gegnum Support á heimasíðu fyrirtækisins. Þannig getu þau safnað saman upplýsingum um málið. Christian segir fyrirtækið ekki þola áreitni af neinu tagi og að þau leggi áherslu á gott samstarf við viðskiptavini þegar slík mál koma upp. Þau slíti samningum við sendla sem hagi sér með óviðeigandi hætti um leið. „Sem fyrirtæki tökum við slíkum tilkynningum alvarlega og sem stelpufaðir get ég líka tengt við þetta á persónulegum nótum. Þetta er ekki eins og við viljum að fólk upplifi fyrirtækið,“ segir Christian. Þá segir hann fyrirtækið vinna með yfirvöldum í hverju landi fyrir sig komi til þess.
Veitingastaðir Persónuvernd Lögreglumál Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Jóhann Már Helgason, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Wolt á Íslandi og meðstjórnandi í hlaðvarpinu Dr. Football, er þessi hefðbundna B-týpa sem hefur verið gert að aðlaga sig að samfélagslegum þörfum A-týpunnar. 19. október 2024 10:01 Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Egill Þór Jóhannsson, 28 ára einkaþjálfaranemi í Keili og Jakub Marcinik, 21 árs, eru báðir sjálfstæðir verktakar hjá vettvangsfyrirtækinu Wolt sem sendlar. 9. september 2024 13:28 Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Fyrr í sumar lenti Gústaf Björnsson í því að óprúttinn aðili með tösku með merkjum fyrirtækisins Wolt stal af honum gaskúti. Atvikið náðist á dyramyndavél en þar sést hvernig sendillinn læðist að grillinu við inngang hússins, laumar gaskútnum ofan í sendlapokann merktan Wolt og hraðar sér síðan í bílinn þar sem félagi hans bíður hans. 14. ágúst 2024 11:18 Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fleiri fréttir Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Sjá meira
„Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Jóhann Már Helgason, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Wolt á Íslandi og meðstjórnandi í hlaðvarpinu Dr. Football, er þessi hefðbundna B-týpa sem hefur verið gert að aðlaga sig að samfélagslegum þörfum A-týpunnar. 19. október 2024 10:01
Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Egill Þór Jóhannsson, 28 ára einkaþjálfaranemi í Keili og Jakub Marcinik, 21 árs, eru báðir sjálfstæðir verktakar hjá vettvangsfyrirtækinu Wolt sem sendlar. 9. september 2024 13:28
Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Fyrr í sumar lenti Gústaf Björnsson í því að óprúttinn aðili með tösku með merkjum fyrirtækisins Wolt stal af honum gaskúti. Atvikið náðist á dyramyndavél en þar sést hvernig sendillinn læðist að grillinu við inngang hússins, laumar gaskútnum ofan í sendlapokann merktan Wolt og hraðar sér síðan í bílinn þar sem félagi hans bíður hans. 14. ágúst 2024 11:18