Viðræður hafnar um kaup á Perlunni, Toppstöðinni og 125 bílastæðum Lovísa Arnardóttir skrifar 7. nóvember 2024 17:59 Tilboðsverð í Perluna er 3.507.161.172 krónur en í kauptilboðinu var kveðið á um ákveðna fyrirvara sem nú eru til skoðunar samkvæmt tilkynningu. Vísir/Vilhelm Viðræður standa nú yfir á milli Reykjavíkurborgar og Perlunnar þróunarfélags ehf. um kaup á Perlunni og tveimur tönkum. Í tilkynningu frá borginni segir að Perlan þróunarfélag ehf. hafi verið leigutaki síðustu átta ár. Þá kemur fram í sömu tilkynningu að gengið verði til samningaviðræðna við hæstbjóðendur í Toppstöðina í Elliðaárdal og 125 bílastæði í bílakjallara Hörpu.
Reykjavíkurborg kynnti fjárhagsáætlun sína fyrir næsta ár fyrr í vikunni. Þar kom fram að borgarstjórn stefni á 500 milljóna króna afgang á þessu ári og 1,7 milljarða á næsta ári. Oddviti Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi þetta og sagði meirihlutann í borginni hagræða sannleikanum og að hagnaður borgarinnar væri bundinn því að Perlan yrði seld. Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs svaraði því síðar og sagði það ekki rétt. Perlan hafi verið rekin í áratugi með tapi upp á tugi og hundruð milljóna. Borgin hafi keypt hana af Orkuveitunni og síðan haft af henni umtalsverðar leigutekjur. Í tilkynningu segir að Perlan hafi fyrst verið auglýst til sölu í júlí á þessu ári. Söluferlinu hafi verið skipt í tvö þrep og kveðið á um að lágmarksverð væri 3,5 milljarðar króna. Þá kemur fram að tveir aðilar skiluðu inn umsókn á fyrsta þrepi en að Perlan þróunarfélag ehf. hafi eitt inn skilað tilboði á öðru þrepi. Tilboðsverð er 3.507.161.172 krónur en í kauptilboðinu var kveðið á um ákveðna fyrirvara sem nú eru til skoðunar. Í tilkynningu segir að samningaumleitanir hafi gengið samkvæmt áætlun miðað við eðli og umfang söluandlagsins. Miðstöð jaðaríþrótta í Toppstöðinni Hvað varðar Toppstöðina kemur fram í tilkynningu að Toppstöðin hafi verið auglýst í byrjun júní til sölu. Borgarráð hafi svo samþykkt í dag að ganga til samningaviðræðna við hæstbjóðanda sem sé Hilmar Ingimundarson fyrir hönd óstofnaðs félags, UUT. Samkvæmt tillögunni verður húsnæðið gert hæft fyrir útleigu og reist þar miðstöð útivistar sem hýst getur jaðargreinar íþrótta og aðra starfsemi sem stutt getur við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. Er áætlaður byggingartími frá undirritun samnings og afhendingu þrjú ár. Þá kemur fram að næst hæsta tilboðið hafi verið frá Landsvirkjun og það hafi verið 300 milljónir. Landsvirkjun hafi einnig gert tilboð upp á 725 milljónir sem hafi einnig innihaldið tilboð í byggingarrétt og gatnagerðargjöld á sér lóð. „Tilboðin voru metin á grundvelli verðs annars vegar, sem taldi til 75 stiga og hins vegar á grundvelli fyrir fram skilgreindra matsþátta sem töldu til 25 stiga. Tillaga UUT hlaut flest stig samkvæmt mati matsnefndar og er meðal annars talin falla vel að hugmyndum Reykjavíkurborgar um sjálfbærni, hönnun, kolefnislosun og önnur umhverfissjónarmið.“ 725,5 milljónir fyrir 125 bílastæði Að lokum kemur fram í tilkynningunni að í júní hafi líka verið auglýst til sölu 125 bílastæði í bílastæðakjallara Hörpu og heimilaði borgarráð í dag að gengið yrði frá kaupsamningi við hæstbjóðanda, Reykjavík Development ehf. Í tilkynningu segir að við söluna hafi verið notað tveggja þrepa kerfi. Fimm tilboð hafi borist í fyrsta þrep og tvö í öðru þrepi. Kaldalón hf. bauð 750 milljónir og Reykjavík Development ehf. 752,5 milljónir. „Eftir yfirferð tilboða er talið að tilboð Reykjavík Development ehf. sé hagstæðara hvað varðar fyrirvara í tilboði, greiðslutilhögun og fjárhæð. Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar,“ segir að lokum.
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Efnahagsmál Bílastæði Harpa Salan á Perlunni Tengdar fréttir Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir yfirlýsingar meirihlutans um rekstrarafgang og vel heppnað aðhald í rekstri borgarinnar. Hálfs milljarðs væntur rekstrarafgangur skýrist alfarið af sölu Perlunnar, sem þurfi að fara fram fyrir áramót. 5. nóvember 2024 12:14 Endurvekja gamlan draum um heilsulind í Perlunni Zeppelin arkitektar hafa auglýst eftir samstarfsaðila til að kaupa Perluna og byggja þar hótel, heilsulind og baðlón. Orri Árnason arkitekt, segir að hugmyndin sé rúmlega tíu ára gömul, en nú sé aftur tækifæri til að láta hana raungerast. 27. júní 2024 16:28 Toppstöðin verður miðstöð jaðaríþrótta Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að gera viljayfirlýsingu við fjárfesta sem vilja byggja upp og mæta þörfum jaðaríþrótta með breytingum á Toppstöðinni í Elliðaárdal. 11. desember 2020 18:07 Mest lesið Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Fleiri fréttir Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Sjá meira
Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir yfirlýsingar meirihlutans um rekstrarafgang og vel heppnað aðhald í rekstri borgarinnar. Hálfs milljarðs væntur rekstrarafgangur skýrist alfarið af sölu Perlunnar, sem þurfi að fara fram fyrir áramót. 5. nóvember 2024 12:14
Endurvekja gamlan draum um heilsulind í Perlunni Zeppelin arkitektar hafa auglýst eftir samstarfsaðila til að kaupa Perluna og byggja þar hótel, heilsulind og baðlón. Orri Árnason arkitekt, segir að hugmyndin sé rúmlega tíu ára gömul, en nú sé aftur tækifæri til að láta hana raungerast. 27. júní 2024 16:28
Toppstöðin verður miðstöð jaðaríþrótta Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að gera viljayfirlýsingu við fjárfesta sem vilja byggja upp og mæta þörfum jaðaríþrótta með breytingum á Toppstöðinni í Elliðaárdal. 11. desember 2020 18:07