Íslenski boltinn

Hafnaði upp­eldis­félaginu og verður á­fram í Mos­fells­bæ

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Fyrirliðinn Aron Elí fer ekki fet.
Fyrirliðinn Aron Elí fer ekki fet. Vísir/Anton Brink

Aron Elí Sævarsson mun ekki ganga í raðir uppeldisfélagsins Vals og tekur slaginn með Aftureldingu í Bestu deild karla í fótbolta á næstu leiktíð.

Hinn 27 ára gamli Aron Elí er uppalinn á Hlíðarenda og er Birkir Már eldri bróðir hans. Líkt og bróðir sinn spilar hann í bakverði en Aron Elí er hins vegar örvfættur og spilar því vinstra megin.

Valsmenn eru heldur fáliðaðir í þeirri stöðu og vildu samkvæmt Fótbolti.net fá Aron Elí heim á Hlíðarenda. Hann ákvað hins vegar að halda kyrru fyrir og verður áfram leikmaður Aftureldingar þegar liðið mætir upp í Bestu deildina í fyrsta skipti.

Það verður jafnframt fyrsta skipti sem Aron Elí spilar í efstu deild en til þessa hefur hann spilað 124 leiki í Lengjudeildinni og17 bikarleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×