Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. nóvember 2024 09:15 Tíðni sykursýki í efnameiri ríkjum heims er mest í Bandaríkjunum og Bretlandi. Getty Fjöldi þeirra sem eru með sykursýki hefur tvöfaldast á síðustu 30 árum og telur nú um 800 milljónir manna. Fjórtán prósent af fullorðnum er nú með sykursýki, samanborið við sjö prósent árið 1990.
Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem voru birtar í Lancet á dögunum. Um er að ræða samstarfsverkefni Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og NCD-RisC en rannsóknin náði til 140 milljón einstaklinga 18 ára og eldri og yfir þúsund rannsókna alls staðar að úr heiminum. Meira en helmingur einstaklinga með sykursýki býr í fjórum löndum; Indlandi (212 milljónir), Kína (148 milljónir), Bandaríkjunum (42 milljónir) og Pakistan (36 milljónir). Þá er áætlað að 25 milljónir séu með sykursýki í Indónesíu og 22 milljónir í Brasilíu. Dreifingin er afar misjöfn eftir ríkjum en í sumum ríkjum í Kyrrahafinu, Karabíska hafinu, Mið-Austurlöndum og Afríku er tíðnin um 25 prósent meðal fullorðinna á meðan hún er tvö til fimm prósent í ríkjum á borð við Danmörku, Frakkland og Spán. Öldrun þjóða auk aukinnir tíðni offitu eru meðal þeirra þátta sem hafa stuðlað að fjölgun einstaklinga sem eiga á hættu að þróa með sér sykursýki týpu 2. Yfir 95 prósent einstaklinga með sykursýki eru með sykursýki týpu 2. Ítarlega umfjöllun um málið má finna hjá Guardian.
Heilbrigðismál Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira