Ákærður fyrir morð og tvær tilraunir til manndráps Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. nóvember 2024 17:29 Frá vettvangi á Skúlagötu á Menningarnótt. vísir Sextán ára drengur sem er grunaður um að hafa stungið sautján ára stúlku til bana á Menningarnótt hefur verið ákærður fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps, fyrir að hafa stungið tvö önnur ungmenni í sömu árás.
Rúv greindi fyrst frá. Þetta kemur fram í ákæru héraðssaksóknara en málið var þingfest í morgun. Fimm ungmenni voru í bifreið í miðbæ Reykjavíkur þann 24. ágúst laust fyrir miðnætti á Menningarnótt þegar drengurinn réðst á þau. Drengurinn braut rúðu bílsins og stakk ítrekað með hníf í pilt sem sat í bílnum og stakk hann bæði í öxl og brjóstkassa. Flúðu þá ungmennin bifreiðina en ein stúlka varð eftir í honum. Réðst þá drengurinn á hana og stakk með hnífnum í öxl, handlegg og hendi. Sextán ára drengurinn er ákærður fyrir tvær tilraunir til manndráps fyrir þessar árásir. Að þessu loknu réðst drengurinn á Bryndísi Klöru Birgisdóttur, sautján ára, og stakk hana í gegnum hjartað. Hún lést nokkrum dögum síðar af sárum sínum á Landspítalanum. Drengurinn er ákærður fyrir morð vegna þessarar árásar. Í ákæru er þess krafist að drengurinn verði dæmdur til refsingar fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps. Foreldrar Bryndísar krefjast hvort um sig sautján milljóna króna í miskabætur en einnig er krafist átta milljóna í miskabætur fyrir hönd stúlkunnar og drengsins sem voru stungin.
Stunguárás við Skúlagötu Dómsmál Lögreglumál Ofbeldi barna Reykjavík Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira