Nýtt íslenskt tískuvörumerki opnar glæsilega verslun Thomsen Reykjavík 3. desember 2024 11:30 Tískuvörumerkið Thomsen Reykjavík opnaði í síðasta mánuði glæsilega verslun á Hafnartorgi í Reykjavík. Verslunin selur tískufatnað undir eigin merkjum auk fleiri vörumerkja. Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir. Nýlega opnaði tískuvörumerkið Thomsen Reykjavík glæsilega verslun á Hafnartorgi í Reykjavík. Verslunin selur bæði eigin hönnun en líka önnur vörumerki. „
Viðtökurnar hafa verið afar góðar. Við höfum við fengið afar sterk viðbrögð við gæðum, útliti og verðum varanna ásamt því að fólk hefur haft orð á því að heildarmynd merkisins og verslunarinnar sjálfrar sé bæði falleg og afslöppuð,“ segir Gunni Hilmarsson, yfirhönnuður, stofnandi og einn af eigendum Thomsen Reykjavík. Í dag er eingöngu boðið upp á karlmannsfatnað en fljótlega bætast inn vörur fyrir konur að sögn Gunna. Gunni Hilmarsson er yfirhönnuður, stofnandi og einn af eigendum Thomsen Reykjavík.Mynd/Þórður Sveinsson. Fatamerkið inniheldur hefðbundinn fatnað á borð við jakkaföt, skyrtur, peysur, boli, yfirhafnir og sokka auk þess sem boðið er upp á vörur frá öðrum fatamerkjum eins og skó, gallabuxur og töskur. Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir.Mynd/Þórður Sveinsson.Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir. Thomsen Reykjavík átti sér stuttan aðdraganda en þar sem stofnendur búa yfir mikilli reynslu af hönnun og framleiðslu tókst að setja upp merkið, verslunina og vefsíðuna á nokkuð skömmum tíma. „Nafnið er fengið frá Thomsen Magasín sem var á sama svæði og Thomsen Reykjavík er staðsett, þ.e. á Hafnartorgi, nánar tiltekið á Tryggvagötu 21. Thomsen Magasin var stofnað 1837 og var orðin stærsta verslun Reykjavíkur árið 1900 með mörgum deildum í nokkrum húsum. Þar var m.a. boðið upp á sér saumuð föt, húsgögn, skó, nýlenduvörur og margt fleira.“ Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir.Mynd/Þórður Sveinsson. Thomsen Reykjavík leggur sérstaklega mikla áherslu á sér saumuð jakkaföt en þau eru framleidd af einni glæsilegustu verksmiðju í Evrópu sem býr yfir áratuga reynslu. „Að kaupa sérsaumuð jakkaföt er góð skemmtun þar sem viðskiptavinurinn fer í gegnum ítarlegt ferli með fagmönnum okkar. Þar er hvert smáatriði ákveðið í sameiningu, svo sem snið, efni, tölur, fóður og ýmis smáatriði. Okkar hlutverk er fyrst og fremst að sjá til þess að sniðin séu fullkomin, henti öllum líkamstegundum og að viðskiptavinurinn fái draumajakkafötin sín sem munu endast og standast tímans tönn. Hægt er að velja allt frá afslöppuðum jakkafötum upp í hátíðleg föt eins og smóking og þess háttar. Viðskiptavinurinn fær svo uppáhalds fötin sín þremur vikum eftir pöntun.“ Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir.Mynd/Þórður Sveinsson.Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir. Jólavertíðin er komin á fullt og býst Gunni við annasömum desembermánuði. „Ég hlakka mikið til að taka á móti fólki núna í desember enda eigum við margt fallegt í jólapakkann eins og fallega trefla, húfur og notalegar peysur svo ekki sé minnst á jólafötin sjálf.“ Thomsen Reykjavík er staðsett í björtu og fallegu húsnæði á Hafnartorgi. Mynd/Þórður Sveinsson. Nánari upplýsingar á vef Thomsen Reykjavík.
Tíska og hönnun Verslun Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Söngvari YMCA látinn Tónlist Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Fleiri fréttir Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Myndaveisla: Fjör í Hafnarfirði um helgina Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Sjá meira