Innlent

Árið gert upp í Krydd­síld 2024

Boði Logason skrifar
Bjarni, Kristrún og Inga hafa um ýmislegt að ræða í lok árs 2024.
Bjarni, Kristrún og Inga hafa um ýmislegt að ræða í lok árs 2024. Vísir/Hulda Margrét

Kryddsíld verður á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 14:00 í dag og verður í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi. 

Umsjónarmenn þáttarins eru ritstjóri og fréttastjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, þau Erla Björg Gunnarsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason. Telma Tómasson er gestgjafi þáttarins.

Í ár mæta sex formenn flokka í myndver Stöðvar 2, samanborið við átta í fyrra. Það eru þau Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, Kristrún Frostadóttir, Samfylkingu, Inga Sæland, Flokki fólksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokki.

Val fréttastofu á manni ársins verður kunngjört auk þess sem tónlist og grín koma við sögu.

Horfa má á útsendinguna í spilaranum hér fyrir neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×