Fótbolti

Brann einnig rætt við Frey

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson gæti mögulega verið á leið til Noregs.
Freyr Alexandersson gæti mögulega verið á leið til Noregs. Getty

Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Brann hafa verið með Frey Alexandersson í sigtinu sem mögulegan næsta þjálfara liðsins, og átt við hann samtal að minnsta kosti einu sinni.

Frá þessu greindi Bergens Tidende í dag. Brann er í leit að nýjum þjálfara eftir að Eirik Horneland, sem stýrði liðinu í fjögur ár, ákvað að hætta en hann stýrði liðinu til 2. sætis norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Tilkynnt var um brotthvarf hans 10. desember, skömmu eftir að síðustu leiktíð lauk.

Sjö dögum síðar, eða 17. desember, var tilkynnt að Freyr hefði verið rekinn frá belgíska félaginu Kortrijk, þrátt fyrir að bjarga liðinu með ævintýralegum hætti frá falli á síðustu leiktíð.

Ljóst er að Freyr er einn þeirra sem komið hafa til greina sem næsti landsliðsþjálfari Íslands en hann mun vera einn þriggja sem að KSÍ boðaði í viðtal í leit að arftaka Åge Hareide. KSÍ hefur einnig rætt við Arnar Gunnlaugsson og einn erlendan þjálfara sem líklegt þykir að sé Norðmaðurinn Per Mathias Högmo.

Nú er komið í ljós að Freyr, sem er 42 ára, er einnig í sigtinu hjá Brann sem annað tímabilið í röð endaði í silfursætinu í norsku úrvalsdeildinni í nóvember. 

Liðið hefur þrívegis orðið Noregsmeistari, síðast árið 2007, og þekkir það að spila undir stjórn Íslendings því Teitur Þórðarson stýrði liðinu árin 1988-1990 og svo aftur 2000-2002. Þá hefur liðið gjarnan haft íslenska leikmenn í sínum röðum þó að enginn sé þar núna.

Eftir að hafa þjálfað kvennalið Vals og karlalið Leiknis R. á Íslandi stýrði Freyr íslenska kvennalandsliðinu í fimm ár og var svo aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í tvö ár, þegar Erik Hamrén var aðalþjálfari. Freyr tók svo við danska félaginu Lyngby árið 2021 og stýrði því fram í janúar 2024 þegar hann tók við Kortrijk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×