Innlent

Formannsslagur í upp­siglingu eftir brott­hvarf Bjarna

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Gísli Freyr Valdórsson, Ólöf Skaftadóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Aðalsteinn Kjartansson eru gestir fyrsta Pallborðsþáttar nýs árs.
Gísli Freyr Valdórsson, Ólöf Skaftadóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Aðalsteinn Kjartansson eru gestir fyrsta Pallborðsþáttar nýs árs. vísir/vilhelm

Nýja árið fer af stað með látum og stórtíðindum úr stjórnmálunum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins til sextán ára, greindi frá því í gær að hann myndi ekki sækjast eftir því að leiða flokkinn áfram og þá ætlar hann að segja skilið við stjórnmálin. 

Til að ræða þetta og þá atburðarás sem Bjarni hefur hrundið af stað með tilkynningu sinni munu mæta í fyrsta Pallborð ársins þau Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Gísli Freyr Valdórsson umsjónarmaður Þjóðmála, Ólöf Skaftadóttir annar tveggja umsjónarmanna Komið gott og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Heimildinni. 

Þátturinn verður sýndur í beinni útsendingu á Vísi og í sjónvarpinu á stöð 2 Vísi á slaginu 15.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×