Sport

Það er ekki flug­elda­sýning í hverjum leik“

Andri Már Eggertsson skrifar
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með sigurinn 
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með sigurinn  Vísir/Jón Gautur

Stjarnan endurheimti toppsætið eftir átta stiga sigur gegn KR 94-86. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var afar ánægður með sigurinn.

„Það er alltaf gaman að vinna og það er alltaf gleði sem fylgir því,“ sagði Baldur sáttur með fyrsta sigurinn á árinu.

Jafnræði var með liðunum til að byrja með en Stjarnan náði að komast í bílstjórasætið þegar heimamenn gerðu níu stig í röð um miðjan annan leikhluta.

„Þetta var frekar jafn leikur og við vorum í vandræðum með Nimrod allan leikinn og hann gerði mjög vel. Þetta var jafn leikur og ég var ánægður með að hafa unnið.“

„Við leiddum leikinn en þetta var ekki sannfærandi. Við vorum í vandræðum með að stöðva ákveðin atriði hjá þeim gegnum gangandi allan leikinn. Það var aldrei neinn svaka kraftur sem kom hjá okkur sem er eðlilegt, það er ekki flugeldasýning í hverjum leik í körfubolta.“

Hilmar Smári Henningsson, Jase Febres og Shaquille Rombley gerðu 77 af 94 stigum liðsins en Baldur taldi það eðlilegt og var ekki að kippa sér upp við það.

„Ægir skorar stundum tuttugu stig og stundum gerir Orri tuttugu stig. Þetta er eðlilegt hjá okkur.“

Félagaskiptaglugginn er opinn og Baldur vildi lítið gefa það upp hvort liðið myndi styrkja sig áður en hann lokar.

„Það er eitthvað sem við erum að skoða og reyna ákveða. Það er ekki komin nein lending með það.“ 

„Styrking getur fyllt upp í ákveðin göt ef þú hittir á réttan mann en ef þú hittir á rangan mann getur þú eyðilagt liðið. Þetta er ákvörðun sem þarf að taka og svo verður hún annað hvort góð eða léleg,“ sagði Baldur Þór að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×