Lífið

Svona var um­horfs í Reykja­vík á áttunda ára­tugnum

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Á þessum árum máttu dátar fara um í einkennisfötum sem síðar var bannað. Hér eru franskir dátar að reyna fyrir sér á Hallærisplaninu.
Á þessum árum máttu dátar fara um í einkennisfötum sem síðar var bannað. Hér eru franskir dátar að reyna fyrir sér á Hallærisplaninu. Hilmar Snorrason

Á áttunda áratugnum var öðruvísi um að litast í Reykjavíkurborg en í dag. Sum kennileiti eru enn á sínum stað á meðan önnur er fyrir löngu horfin.

Þetta var á áratug Guðmundar- og Geirfinnsmálsins, þorskastríða og handritamálsins. Kristján Eldjárn sat í forsetastólnum og íslenskar konur í þúsundavís lögðu niður störf á Kvennafrídeginum í október árið 1975.

Sjoppur voru á hverju götuhorni, Breiðholtið var enn í byggingu og neðri hluti Laugavegarins var ennþá umferðargata. Lögreglustöðin við Hlemm var tiltölulega nýbyggð og Hallgrímskirkja var enn í byggingu.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í miðborginni og víðar á þessum árum og eru einstök heimild um veröld sem var. Myndirnar eru í eigu Hilmars Snorrasonar, fyrrum skóla­stjóra Slysa­varna­skóla sjó­manna og áhugaljósmyndara með meiru.

„Ég elska að taka myndir af mannlífi og andlitum auk skipamynda, og það er af nógu að taka í filmusafninu,“ segir Hilmar í samtali við Vísi.

Undanfarin misseri hefur Hilmar staðið í tiltekt og skönnun á gömlum filmum og þá hefur eitt og annað komið í ljós.

„Ég er enn iðinn með myndavélina og á yfir þrjú þúsund stafrænar myndir. Að vísu hætti ég að taka mannlífsmyndir eftir að ég hóf störf á sjó og eignaðist börn en þá var myndavélinni beitt í aðra átt.“

Lögregluþjónar á Hverfisgötunni.Hilmar Snorrason
Svona leit Amtmannsstígur út.Hilmar Snorrason
Við Reykjavíkurtjörn.Hilmar Snorrason
,Allir með strætó, allir með strætó, enginn með Steindóri," segir í laginu.Hilmar Snorrason
Hersetu mótmælt og laganna verðir standa sína plikt.Hilmar Snorrason
Á þessum tíma voru sjoppur á hverju götuhorni.Hilmar Snorrason
Laugardalslaugin í árdaga.Hilmar Snorrason
Móðir og börn koma fyrir hornið á versluninni Geysi.Hilmar Snorrason
Norsk kvennalúðrasveit í heimsókn.Hilmar Snorrason
Svona var um að litast í Sigtúninu.Hilmar Snorrason
Blokkirnar í Krummahólum.Hilmar Snorrason
Þessi mynd er tekin á Skólavörðustígnum.Hilmar Snorrason
Austurstræti er gjörólíkt því sem áður var.Hilmar Snorrason
Bíll endaði niðri í fjöru á Skúlagötunni.Hilmar Snorrason
Þarna átti gata að fara yfir miðbæinn með akstri upp á Tollhúsið.Hilmar Snorrason
Frá verðbúðarbryggjunum í Reykjavíkurhöfn.Hilmar Snorrason
Sjónvarpið að störfum og tökumaðurinn með virðulegan hatt á höfði.Hilmar Snorrason

Einhverjir ættu að muna eftir þessum róló sem var í Laugarneshverfinu.Hilmar Snorrason
Á horninu á Þingholtsstræti var rakarastofa Bjarna og Tomma.Hilmar Snorrason

Tengdar fréttir

Þegar pönkararnir héngu á Hlemmi

Á níunda áratug síðustu aldar gegndi Hlemmur öðru hlutverki sem samkomustaður en í dag. Þegar skýlið á Hlemmtorgi var opnað á sínum tíma var í fyrsta sinn komið opið almenningsrými á Íslandi, þar sem fólk, óháð stétt og stöðu, gat leitað skjóls. Þar sem nú er mathöll var því fyrr á árum nokkurs konar félagsmiðstöð fyrir einstaklinga sem lifðu utan við og á jaðri samfélagsins.

Þegar Þórscafé var heitasti skemmtistaðurinn í Reykjavík

Veitinga- og skemmtistaðurinn Þórscafé er á meðal langlífustu og vinsælustu skemmtistaða sem hér hafa starfað en saga hans spannaði ríflega hálfa öld. Á tímabili var Þórscafé eini staðurinn í Reykjavík þar sem lifandi tónlist var leikin að staðaldri og flestir af þekktustu tónlistarmönnum og hljómsveitum þjóðarinnar komu þar fram.

Ein­stakar ljós­myndir úr Sund­höll Reykja­víkur í gegnum tíðina

Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg á sér langa sögu sem nær aftur til fjórða áratugs seinustu aldar. Um áratugaskeið var Sundhöllin helsta kennslu- og æfingalaug Reykjavíkur og í gegnum tíðina hefur laugin eignast óteljandi fastakúnna sem þangað koma til að fá sér sundsprett, rækta líkama og sál og ræða þjóðmálin til mergjar í heita pottinum.

Manstu eftir Sæ­dýra­safninu í Hafnar­firði?

„Sædýrasafn hefur verið sett á stofn í Hafnarfirði og verður það opnað næstkomandi fimmtudag. Í safninu eru nú búr sem rúma 52 tonn af vatni og eru nú þegar um 30 tegundir sjávardýra í þeim, þar af 17 fiskategundir.“ Þannig hófst frétt sem birtist í Morgunblaðinu þann 7. maí árið 1969.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.