Innlent

Ýmis­legt hægt að lesa í mætingu á fund Ás­laugar

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Dómsmálaráðherrarnir fyrrverandi, Áslaug og Sólveig Pétursdóttir, féllust í faðma að fundinum loknum. 
Dómsmálaráðherrarnir fyrrverandi, Áslaug og Sólveig Pétursdóttir, féllust í faðma að fundinum loknum.  RAX

Margt var um manninn í Sjálfstæðissalnum á NASA þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnti um framboð sitt til formanns flokksins í dag. Þó lét enginn þingmaður flokksins sjá sig. 

Áslaug fór um víðan völl í ræðunni sinni. Hún þakkaði Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur og Bjarna Benediktssyni samstarfsfólki sínu fyrir samstarfið. Hún skaut á nýja ríkisstjórn, sem hún kallaði tveggja flokka vinstristjórn með félagasamtökum sem stefni að því að skrá sig sem stjórnmálaflokk fyrr eða síðar. 

Sjá einnig: Áslaug ætlar í formanninn

Kosið verður í embættið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um mánaðamót febrúar og mars. Áslaug er ein í framboði enn sem komið er. 

Húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum. RAX

Athygli vakti að enginn úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins lét sjá sig á fundinum. Fréttastofa hafði samband við Hildi Sverrisdóttur þingflokksformann vegna þess, en hún segir ekki ástæðu til að lesa í ákvörðun þingmannanna að mæta ekki.  

„Það þarf enginn að velkjast í vafa um að Áslaug Arna nýtur mikils stuðnings og trausts víða í hinum ýmsu kimum flokksins og þar með einnig hjá kjörnum fulltrúum hans. Það getur einfaldlega staðið mismunandi á hjá fólki og eins er alvanalegt að kjörnir fulltrúar haldi að sér höndum á meðan línur eru að skýrast og þá sérlega í þeirri stöðu sem uppi er núna þegar ekki er verið að bjóða fram gegn sitjandi forystu,“ segir Hildur. 

Merkið sem prýddi ræðupúltið og skjáinn segir Áslaug sitt. Henni hafi ekki fundist passa að nota merki flokksins í sína persónulegu baráttu. RAX

Hún segist mikil vinkona og aðdáandi Áslaugar en í senn þingflokksformaður flokksins alls og þar af leiðandi allra þingmanna. Meðal þeirra hafi einhverjir sagst íhuga framboð til formanns. 

„Ég tel því rétt að gefa ekki upp hvern ég mun styðja til formennsku í okkar góða flokki fyrr en þegar nær dregur landsfundi.“

Hún muni gera skilmerkilega grein fyrir því hvern hún styður þegar eftir að nýtt þing er komið saman og landsfundur nálgast. 

„Það er mikilvægt að þingflokkurinn byrji þingið af krafti í stjórnarandstöðu í fyrsta sinn í rúmlega áratug. Þar er af nógu að taka og mikilvægt að við einbeitum okkur saman að því verkefni,“ segir Hildur.

Í fjarveru þingflokksins vakti þó athygli að nánir aðstandendur þingmanna í flokknum létu sjá sig á fundinum. Þeirra á meðal er Gísli Árnason sambýlismaður Hildar Sverrisdóttur, Margrét Bjarnadóttir dóttir Bjarna Benediktssonar og Ísak Ernir Kristinsson unnusti hennar. Þá var Sigurgeir Jónasson sonur Rósu Guðbjartsdóttur mættur á fundinn. 

Ragnar Axelsson, RAX, ljósmyndari var á staðnum og festi viðburðinn á filmu. Myndirnar má sjá hér að neðan. 

Ungir Sjálfstæðismenn áttu fulltrúa á fremsta bekk. RAX
Sólveig Guðrún Pétursdóttir fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra mætti á fundinn. RAX
RAX
Áslaug ávarpaði salinn. RAX
Sólveig Guðrún og Áslaug að fundinum loknum. Sólveig gegndi embætti dóms- og kirkjumálaráðherra 1999-2003. RAX
Ljóst er að Áslaug á sér aðdáendur úr ýmsum áttum. RAX

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×