Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Valur Páll Eiríksson skrifar 7. febrúar 2025 12:30 Róbert Orri Þorkelsson verður frá um hríð. Mynd/Víkingur Það ætlar ekki af Róberti Orra Þorkelssyni, nýjum leikmanni Víkings, að ganga. Hann meiddist eftir sex mínútur í fyrsta leik og missir af komandi Evrópuævintýri.
Róbert Orri sneri heim úr atvinnumennsku til að semja við Víking fyrir skemmstu. Hann hafði þá lent í ógöngum hjá danska félaginu SönderjyskE, sem fékk hann til Spánar undir þeim forsendum að ganga frá samningum. Samningsboðið barst aldrei og Róbert flaug aftur heim til Íslands og hafði skömmu síðar gengið frá samningum við Víkinga. Róbert Orri hefur glímt við töluverð meiðsli frá því að hann hélt út í atvinnumennsku árið 2021 og spilaði aðeins 20 leiki á fjórum árum hjá kanadíska liðinu Montreal Impact sem leikur í bandarísku MLS-deildinni. Hann átti fínan tíma með Kongsvinger í Noregi á síðustu leiktíð en óhætt er að segja að hann hafi orðið fyrir áfalli í fyrsta leik með Víkingum. Róbert Orri fór meiddur af velli eftir aðeins sex mínútna leik er Víkingar mættu HK í Lengjubikarnum í gærkvöld. Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, staðfesti við 433.is að Róbert Orri hefði tognað og verður því frá um hríð. Róbert missir því af leikjum Víkings við Panathinaikos í Sambandsdeild Evrópu. Fyrri leikurinn sem telst sem heimaleikur Víkinga fer fram í Helsinki á fimmtudaginn næsta. Víkingar halda utan á þriðjudag. Liðið sem vinnur einvígið fer í 16-liða úrslit keppninnar. Leikur Víkings og Panathinaikos er klukkan 17:45 á fimmtudag og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.
Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn Fótbolti Sambandsdeild Evrópu Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira