Umsvifamikill verktaki bætist í hóp stærstu hluthafa Reita
![Verslunarmiðstöðin Kringlan er á meðal fasteigna í eignasafni Reita, sem telur samtals 475 þúsund fermetra og samanstendur af um 135 eignum, að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.](https://www.visir.is/i/E43FB23BD1B0224955445B2795F3E6CA39F499238C628D50E5852AE6EF9CA3C5_713x0.jpg)
Fjárfestingafélag í eigu eins umsvifamesta verktaka landsins hefur verið að byggja upp stöðu í Reitum og er núna á meðal allra stærstu einkafjárfestanna í hluthafahópi fasteignafélagsins. Fjárfestar hafa á undanförnum mánuðum verið að sýna fasteignafélögunum aukinn áhuga en hlutabréfaverð þeirra hefur hækkað hvað mest meðal allra félaga í Kauphöllinni á tímabilinu.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/CE5994416A0DFAB587877AC7E0683DCD595A9C4AF311BEF196169370E84A9DAA_308x200.jpg)
Arcus hagnaðist um fimm milljarða og eigið fé eykst í 20 milljarða
Fasteignaþróunarfélagið Arcus, sem er í eigu Þorvaldar Gissurarsonar, hagnaðist um 4,7 milljarða króna á árinu 2023. Hagnaðurinn jókst um milljarð króna milli ára. Arcus er systurfélag ÞG Verks.
![](https://www.visir.is/i/0DA232E2692BFC05370DCBC5D7275779C1FCADE200E9A13D691E786CA5F76744_308x200.jpg)
Brimgarðar minnka verulega stöðu sína í Reitum og Heimum
Brimgarðar, stór einkafjárfestir í öllum skráðu fasteignafélögunum, hefur á undanförnum tveimur mánuðum losað um verulegan hluta af stöðu sinni í Heimum og Reitum samtímis því að fjárfestingafélagið hefur freistað þess að stækka enn frekar við eignarhlut sinn í Eik.
![](https://www.visir.is/i/A5AFD203E21254547D7F34C09D862A937806A3F0FF65F1F458C5ACCE96870034_308x200.jpg)
Reitir munu fjárfesta fyrir hærri fjárhæðir í ár en vænst var
Búast má við að Reitir fjárfesti fyrir hærri fjárhæðir en gert var ráð fyrir í ár. Forstjóri fasteignafélagsins benti á að þegar hafi verið fjárfest fyrir níu milljarða af þeim ellefu sem miðað var við. „Það hefur gengið vel að fá góðar eignir,“ að hans sögn, og haldið verði áfram á sömu braut.
![](https://www.visir.is/i/B20220347939DA587E9288C2571217EF67122049A6EEF8BDFE691451F4160A74_308x200.jpg)
Hundrað punkta lækkun vaxta myndi hækka virði eigna Heima um 26 milljarða
Stjórnendur Heima munu áfram halda að skoða tækifæri til eignasölu en á árinu hefur félagið selt eignir fyrir um 3,3 milljarða og mun skila þeim fjármunum til hluthafa í gegnum kaup á eigin bréfum. Eftir mikla hækkun á hlutabréfaverði Heima síðustu mánuði er virði hlutafjár núna að nálgast bókfært eigið fé en væntingar um lækkandi vaxtastig ættu að hafa mikil jákvæð áhrif á virðismat fjárfestingareigna og vaxtakostnað fasteignafélaganna.