Hér erum við að tala um Ingveldi Líf Þorbergsdóttur frá Vík í Mýrdal og vinkonu hennar hana Lunu, sem er dönsk, sem taka þátt í söngvakeppninni í kvöld í beinni útsendingu hjá Danska sjónvarpinu. Ingveldur Líf og fjölskylda hennar hafa búið í Danmörku síðustu ár en fjölskylda hennar er meðal annars frá Vík og eru afi og amma hennar að sjálfsögðu mætt í Danmörku til að fylgjast með barnabarninu á stóra sviðinu í keppni kvöldsins en afinn er Sigurgeir Már Jensson læknir í Vík og amman er Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni í Vík.

Svanlaug Árnadóttir, mamma Ingveldar segir mikla spennu fyrir kvöldinu en búið er að selja um 10 þúsund miða á keppnina, sem fer fram í stórri íþróttahöll í Henning. En hvað getur hún sagt okkur um, Ingveldi Líf 10 ára, hvernig stelpa er hún?
„Hún hefur alveg síðan hún var lítil verið syngjandi og dansandi og alltaf svona opin og óhrædd að taka þátt í einhverju svona og koma fram. Svo hefur hún tekið þátt í allskonar leiksýningum, sem hafa verið í Óðinsvéum,” segir Svanlaug.

Svanlaug segir að hún og pabbi hennar, Þorbergur Atli séu mjög stolt af stelpunni sinni og hlakki mikið til að sjá hana á sviðinu í kvöld en þau eiga önnur fjögur börn.
„Jú, við erum alveg ofsalega stolt og þetta er svo spennandi og skemmtilegt að sjá hana blómstra í þessu og við getum ekki beðið eftir að sjá hana í kvöld, það verður bara þvílík upplifun.”
Öll lögin í kvöld eru frumsamin af krökkunum, bæði lag og texti.
„Lagið þeirra heitir „Ud med regler”, sem þýðir út með reglur og þetta er svolítið eins og lagið um allt sem má ekki, þetta íslenska lag,” segir Svanlaug og bæti við í lokin.
„Ég bara vona að sem flestir fylgist með því þetta verður rosalega gaman og senda okkur góða strauma, höldum með okkar stelpu.”
Hægt verður að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu klukkan átta í kvöld á íslenskum tíma í Danska ríkissjónvarpinu DK fyrir þá sem hafa aðgang á þeirri stöð.
