Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Kjartan Kjartansson skrifar 24. febrúar 2025 09:17 Gagnaver Google í Hamina við Finnlandsflóa. Fyrirtækið ætlar sér að reisa fleiri gagnaver í Kajaani og Muhos. Google Stófelld uppbygging gagnavera sem erlend fyrirtæki stefna að í Finnlandi er ólíkleg til þess að skila landinu miklum efnahagslegum ávinningi og er mengandi, að mati þarlends sérfræðings. Nokkur af stærstu gagnaverunum á Íslandi eru nú í eigu erlendra aðila.
Tæknirisinn Google er á meðal þeirra erlendu fyrirtækja sem ætla að reisa gagnaver víðsvegar um Finnland á næstunni. Fjallað er um gagnrýni Jukka Manner, prófessors í tölvunarfræði við Aalto-háskóla, á áformin í finnska ríkisútvarpinu. Manner hefur meðal annars rannsakað orkunotkun upplýsingatæknigeirans og segist hafa áhyggjur af því að orkunotkun eigi eftir að stóraukast með tilkomu veranna. Vitnar Manner til Írlands sem víti til varnaðar. Þar hafi gagnaver byrjað að nota meiri raforku en heimili í landinu fyrir nokkrum árum. Stór hluti orkunnar sé framleiddur með bruna á jarðefnaeldsneyti. Spáð er enn örari vexti gagnaver Gagnaverin séu ósveigjanleg þegar kemur að orkumálum. Ólíkt öðrum iðnaði séu þau keyrð allan sólarhringin. Þau geti þess vegna ekki reitt sig eingöngu á endurnýjanlega orkugjafa eins og vindorku sem er sveiflukennd í eðli sínu. Þá er Manner fullur efasemda um að gagnaverin skapi mikil verðmæti fyrir aðra en erlenda eigendur sína. þvert á fullyrðingar finnsku ríkisstjórnarinnar. Þó að gagnaverin kunni að skapa störf fyrir öryggisverði, iðnaðarmenn, hugbúnaðarfræðinga og ræstitækna bæti þau ekki miklu virði við. Skatttekjur ríkisins verði heldur ekki sérlega miklar. Erlend fyrirtæki hafa keypt nokkur af stærstu gagnaverunum sem rekin eru á Íslandi á undanförnum árum. Þau fjögur gagnaver sem Landsvirkjun selur rafmagn eru öll í eigu erlendra aðila. Orkufyrirtækið segist hafa dregið verulega úr sölu rafmagns til gagnavera. Við lok síðasta árs hafi sala til þeirra þannig verið þriðjungur af því sem hún var árið 2022.
Gagnaver Orkumál Finnland Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæpleg hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Fleiri fréttir Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira