Innlent

Steig út úr strætó og fékk gangstéttarhellu í höfuðið

Jón Þór Stefánsson skrifar
Árásin sem málið varðar mun hafa átt sér stað við strætóstoppistöðina í Mjóddinni.
Árásin sem málið varðar mun hafa átt sér stað við strætóstoppistöðina í Mjóddinni. Vísir/Vilhelm

Ungmenni á fimmtánda aldursári, sem er því undir sakhæfisaldri, er grunað um að kasta gangstéttarhellu í höfuð manns um helgina við strætóstoppistöð í Mjóddinni í Reykjavík. Árásin mun hafa verið tilviljanakennd, en hópur ungmenna mun hafa veist að manninum sem var að stiga úr strætisvagni. Aðdragandi árásarinnar, milli mannsins og ungmennanna, mun ekki hafa verið neinn.

Maðurinn var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans.

„Þegar það er verið að kasta svona í höfuðið á manni er það auðvitað stórhættulegt,“ segir Krist­mund­ur Stefán Ein­ars­son, aðal­varðstjóri á lög­reglu­nni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.

Mbl.is greindi fyrst frá árásinni. Samkvæmt heimildum miðilsins er sá grunaði, sem hefur gengist við verknaðinum, tengdur meintri ofbeldisöldu í Breiðholtsskóla.

Krist­mund­ur segir að lögreglu hafi borist tilkynning um málið milli kvöldmatarleitisins og miðnættis á laugardagskvöld.

Fréttastofu hafa borist ábendingar um að mögulega sé aukin öryggisgæsla í Mjóddinni um þessar mundir. Kristmundur segist ekki vita hvernig öryggisgæslu, sem er ekki á vegum lögreglunnar, sé háttað þar. Hins vegar reyni lögreglan sjálf að sinna svæðum í auknum mæli þar sem ungmenni séu líkleg til að koma saman.

„Lögreglan er meðvituð um ofbeldishegðun ungmenna og er að reyna að beina löggæslunni meira á þau svæði.“


Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×