Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Árni Sæberg og Jón Þór Stefánsson skrifa 16. maí 2025 12:55 Brynjar Joensen Creed hlaut þriggja ára dóm í Héraðsdómi Reykjaness, en í fyrra hlaut hann sjö ára dóm í Hæstarétti. Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán stúlkum. Dómurinn er til viðbótar við sjö ára dóm sem hann hlaut í Hæstarétti í fyrra fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum.
Þetta segir í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp þann 12. maí en birtur í dag. Flestir ákæruliðirnir á hendur Brynjari vörðuðu kynferðislegt tal og sendingar á kynferðislegum myndum til stúlkna í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. Myndefni þetta sýndi, samkvæmt ákæru, ber kynfæri karlmanns og karlmann fróa sér og annað af kynferðislegum toga. Jafnframt bað hann stúlkurnar oft um að senda sér kynferðislegar myndir á móti. Í einum ákæruliðnum var honum gefið að sök að hitta stúlku tvívegis og afhenda henni rafrettu og kynlífshjálpartæki sem hann mun hafa hvatt hana til að nota og senda sér myndefni af því. Jafnframt var hann ákærður fyrir að hafa í vörslum sínum, í síma sínum, samtals 24 ljósmyndir sem sýndu stúlku á kynferðislegan hátt. Rannsókn lögreglu sýni aðeins brot samskiptanna Í niðurstöðukafla dómsins segir að hvað fyrri ákærulið varðar hafi Brynjari verið gefið að sök að hafa staðið í kynferðislegum samskiptum við fimmtán brotaþola. Samskiptin hafi verið allt frá því að viðhafa kynferðislegt tal upp í sendingar á afar grófum kynferðislegum myndum og myndskeiðum sem hann sendi brotaþolum sem voru þá börn að aldri. Þá hafi honum jafnframt verið gefið að sök að hafa hvatt sumar stúlknanna til að senda honum myndir og myndskeið þar sem þeim var gert að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir. Sýnt þyki að fyrirliggjandi samskipti sem lögregla náði að afrita við rannsókn málsins sýni ekki nema brot af þeim samskiptum og sendingum sem áttu sér stað á milli Brynjars og stúlknanna. Af samhengi samskiptanna megi vel ráða að Brynkar hafi sent stúlkunum fjölmörg önnur skilaboð af kynferðislegum toga og að sumar stúlknanna hafi sent honum annað efni að hans undirlagi, sem ekki hafi fundist við skoðun. Stúlkurnar trúverðugar en lítið gefið fyrir skýringar Brynjars Þá sé það mat dómsins að framburður stúlknanna allra sé mjög trúverðugur og hann fái auk þess stoð í gögnum málsins og hann verði lagður til grundvallar við úrlausn málsins. Brynjar hafi á hinn bóginn engar skýringar gefið á samskiptunum eða rennt stoðum undir það sjónarmið sitt að hann hafi talið sig hafa verið í samskiptum við fullþroska einstaklinga. Þvert á móti þyki sýnt að hann hafi engu skeytt um það, auk þess sem beinlínis verði ráðið að hann hafi beint spjótum sínum að barnungum stúlkum í þeim tilgangi að eiga við þær kynferðisleg samskipti. Hefði átt að ganga úr skugga um að hann ætti í samskiptum við fullorðna Brynjari hefði enda borið að ganga sérstaklega úr skugga um að sendingum hans og samskiptum, sem öll hafi verið af kynferðislegum toga, og hafi mörg hver haft að geyma einkar gróf kynferðisleg skilaboð, myndir og myndbönd, væri ekki beint til barna, líkt og raun hafi orðið á. „Líkt og sjá má í gögnum notast brotaþolar iðulega við styttingar orða í skriflegum samskiptum sínum, líkt og algengt er hjá ungu fólki, svo sem „mdl“ sem stendur fyrir módel eða fæðingarár, „eikhv“ í stað eitthvað, „mrg“ fyrir morgun og „ig“ í stað Instagram, svo eitthvað sé nefnt, auk þess sem orðfæri ritaðra skilaboða ber þess almennt skýr merki að stafa ekki frá fullorðinni manneskju. Þá notaðist ákærði sjálfur við lyndistákn, sem almennt er viðurkennt að hafa sérstaka merkingu meðal ungs fólks og ákærði virðist hafa tileinkað sér í þeim tilgangi að eiga við stúlkurnar kynferðisleg samskipti,“ segir í dóminum. Með þessu og öllu öðru hafi Brynjar villt á sér heimildir og þóst vera á táningsaldri, en ætla megi að það hafi verið í þeim tilgangi einum að ná sambandi við stúlkur sem hann vissi að væru börn að aldri. Enn fremur beri myndir og myndskeið sem sumar stúlknanna sendu Brynjari berlega með sér að um sé að ræða mjög unga einstaklinga. Með 24 myndir í símanum Hvað varðar annan ákærukafla segir að Brynjari hafi einnig verið gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum á farsíma alls 18 ljósmyndir sem sýni hluta brotaþolanna á kynferðislegan hátt. Í fyrri ákæruliðnum var hann ákærður fyrir sex ljósmyndir, og þær því samtals 24 talsins. Brynjar hafi í skýrslutöku hjá lögreglu sagst ekki muna eftir þessu og ekki kannast við myndirnar, en hann hafi ekki tjáð sig sérstaklega um þær fyrir dómi. Í greinargerð Brynjar sé hvað þennan ákærulið varðar vísað til þess að ekki liggi fyrir að myndirnar hafi borist honum, auk þess sem ósannað sé að þær séu af brotaþolum eða öðrum. Í niðurstöðunni segir að óumdeilt sé að umræddar ljósmyndir hafi verið vistaðar á símtæki Brynjars. Myndirnar hafi verið bornar undir brotaþola við skýrslutöku fyrir dómi, sem hafi sagst þekkja sig á myndunum. Framburðir brotaþola hefðu áður verið metnir trúverðugir gagnstætt framangreindum sjónarmiðum sem teflt hafiverið fram af hálfu Brynjars. Verði því talið hafið yfir skynsamlegan vafa að Brynjar hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Tíu ár í heildina Í kafla dómsins um ákvörðun refsingar segir að Brynjar hafi með dómi Hæstaréttar frá janúar 2024 verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum, þar á meðal hafi hann þar verið fundinn sekur um að hafa í þrígang gerst brotlegur við nauðgunarákvæði almennra hegningarlaga, en refsirammi þess ákvæðis sé sextán ára fangelsi. Í málinu hafi Brynjar jafnframt verið sakfelldur fyrir brot gegn þeim ákvæðum almennra hegningarlaga sem hann er sakfelldur í þessu máli. „Líkt og greinir í nefndum dómi Hæstaréttar hefur netnotkun barna og ungmenna aukist til muna á undanförnum árum og nýta þau sér samfélagsmiðla í miklum mæli til samskipta. Auðvelt er að nálgast þá sem nýta sér þá miðla og samskiptaforrit, villa þar á sér heimildir, misnota traust sem verður til í slíkum samskiptum og beita blekkingum til þess að viðhafa refsiverða kynferðislega háttsemi. Þá hefur sú þróun sem orðið hefur með aukinni netnotkun barna og breyttu samskiptamynstri þeirra í milli og við aðra með notkun samskiptaforrita og samfélagsmiðla gert þau berskjölduð gagnvart kynferðislegri háttsemi sem unnt er að drýgja á þessum vettvangi,“ segir í dóminum. Refsing nú verði ákveðin samkvæmt framangreindu og einnig ítrekunarákvæðum almennra hegningarlaga og verði Brynjar því dæmdur til refsingar sem samsvarar þeirri þyngingu hegningarinnar, sem kynni að hafa orðið, ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu. „Samkvæmt öllu þessu verður viðbótarrefsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár. Er þá ekki síst litið til þess að brot þau sem nú eru til meðferðar eru fjölmörg og svívirðileg, eins og rækilega hefur þurft að rekja í dómi þessum. Brot ákærða beindust þannig gegn mjög ungum stúlkum sem voru á afar viðkvæmum aldri, en sumar þeirra voru einungis 11 ára þegar brotin voru framin. Voru brot ákærða ófyrirleitin og beinlínis til þess fallin að hafa afar neikvæð áhrif á sálarlíf stúlknanna. Eru brot ákærða til þess fallin að marka þolendur þeirra til lífstíðar.“ Bætur vel á annan tug milljóna Samkvæmt dóminum var Brynjari gert að greiða samtals 17,6 milljónir samtals í miskabætur til stúlknanna. Hæstu stöku bæturnar hljóða upp á 1,5 milljónir, en þær lægstu upp á 750 þúsund. Honum er einnig gert að greiða sakarkostnað málsins, sem er samtals 14,8 milljónir króna.
Mál Brynjars Joensen Creed Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Samfélagsmiðlar Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Fleiri fréttir Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Sjá meira