Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Lovísa Arnardóttir skrifar 15. júní 2025 07:02 Enn eru framkvæmdir við Brákarborg. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í september og leikskólastarf gefi hafist að nýju í október. Vísir/Anton Brink Gert er ráð fyrir því að starfsfólk og börn leikskólans Brákarborgar komist aftur í sitt eigið húsnæði í október á þessu ári en að framkvæmdum eigi að vera lokið í september. Tæp fimm ár eru síðan Reykjavíkurborg festi kaup á húsnæði við Kleppsveg í þeim tilgangi að breyta því í leikskóla.
Húsnæðið var keypt á um 600 milljónir og var kostnaður áætlaður við breytingar um 600 milljónir. Heildarkostnaður átti því að vera um 1,2 milljarður. Um fimm árum síðar liggur endanlegur kostnaður ekki fyrir en er áætlað að hann verði tvöfalt það sem áætlað var að hann yrði í upphafi. Leikskólinn var opnaður 2022 en stuttu eftir opnun bárust fyrstu tilkynningar um sprungur í veggjum og að erfitt væri að loka hurðum. Leikskólinn var svo rýmdur síðasta haust þegar kom í ljós við nánari athugun tveggja verkfræðistofa að burðarþol þaksins var ekki samkvæmt stöðlum. Þakið var í kjölfarið rifið af og gert nýtt og stendur vinna enn yfir. Verktakafyrirtækið Ístak tók að sér lagfæringar á húsnæði Brákarborgar eftir að kom í ljós að burðarþol þaksins væri ekki nægjanlegt. Vísir/Anton Brink Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar skilaði í síðustu viku skýrslu um hönnun, framkvæmd og eftirlit með byggingu leikskólans Brákarborgar. Niðurstaða skýrslunnar er svört. Þar má lesa um röð mistaka sem voru gerð við hönnun og framkvæmd leikskólans auk deilna á milli þeirra aðila sem komu að framkvæmdinni. Þar má til að mynda sjá að verktaki lýsti ítrekað yfir áhyggjum af því að burðarþol byggingarinnar væri ekki nægjanlegt fyrir þær breytingar á húsinu sem voru áætlaðar samkvæmt hönnun. Áður en hann hóf viðgerðir á þaki óskaði hann eftir skriflegri yfirlýsingu frá burðarþolshönnuði um að burðarhæfni steinsteypu væri nægjanleg til að taka við því aukaálagi sem gert var ráð fyrir í framkvæmdinni. Gert var ráð fyrir að sett yrði ójárnbundin steypulögn á þakið sem yrði að hámarki tíu sentimetrar. Steypulögnin varð að enda þrettán sentímetrar. Verkið illa undirbúið og mikil pressa Verktakinn, Þarfaþing, lýsti því einnig ítrekað yfir að honum þætti verkið illa undirbúið fyrir útboð og að veruleg pressa væri frá borginni að ljúka framkvæmdum á tíma. Hann taldi áætluð verklok óraunhæf. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengdist þessi pressa kosningum sem áætlaðar voru vorið 2022 en meðal kosningaloforða meirihlutans í þeirri kosningabaráttu var að koma öllum börnum 12 mánaða og eldri að í leikskóla. Verktakinn gerði einnig oft athugasemdir við að hönnunargögn burðarvirkis væru ekki til staðar. Innra eftirlit borgarinnar gerir þó athugasemd við það í nýlegri skýrslu sinni um leikskólann að í áfangaúttektum verktakans til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS, hafi ekki verið minnst á þetta. Það sé alvarlegt að mati HMS þegar slík gögn séu ekki til staðar og það eigi að leiða til þess að framkvæmdir verði óheimilar þar til brugðist hafi verið við. Skýrsla innri endurskoðunar fjallar um hönnun, framkvæmd og eftirlit við byggingu leikskólans Brákarborgar. Ein niðurstaða skýrslunnar er að við lok verks eigi umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar að meta heildarkostnað vegna tjóns og meta hvort sækja eigi skaðabætur til verktaka og/eða annarra ráðgjafa sem komu að verkefninu. Fréttastofa ræddi við aðila sem taldi ólíklegt að hægt væri að færa rök fyrir því að verktaki væri ábyrgur, það væri frekar burðarþolssérfræðingurinn sem fenginn var til verksins og aðrir aðilar sem störfuðu við verkið, til dæmis innan borgarinnar. Margar athugasemdir vegna burðarþols Margar athugasemdir innra eftirlits lúta einmitt að framkvæmd og mati við burðarþol bygginganna. Fjallað er um að skrifstofa viðhalds og framkvæmda hafi óskað eftir aðila í burðarvirkishönnun Brákarborgar með mikla reynslu í mannvirkjahönnun í gegnum innkaupakerfi borgarinnar. Innri endurskoðun telur þann sem var ráðinn ekki hafa uppfyllt hæfisskilyrði fyrir burðarvirkishönnun skólabyggingar. Arkamon ehf. vann útboðið á grundvelli lægsta verðs. Valgeir Berg Steindórsson hjá Arkamon vildi ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins. Í skýrslunni eru gerðar athugasemdir við að við útboð hafi gögn um burðarþol ekki legið fyrir og að ekki hafi verið gerð skoðun á burðarþoli fyrir kaup á húsnæðinu, heldur aðeins almenn ástandsskoðun. Sérstaklega mikilvægt sé að kanna burðarþol þegar endurbyggja á eða breyta byggingum. Þá er bent á að skrifstofa viðhalds og framkvæmda hafi samið við sjö mismunandi aðila um hönnun Brákarborgar en að mögulega hefði það skilað öruggari tryggingum, skýrari ábyrgðarskiptingu og hagkvæmari innkaupum að semja við færri aðila. Þá gerir innra eftirlit einnig athugasemd við að verktaki hafi einnig sinnt hlutverki byggingarstjóra. Það er samkvæmt lögum og tíðkast en í skýrslunni tiltekið að hlutverkin fari ekki saman því það veiki eftirlitshlutverk byggingarstjóra. Innra eftirlit telur einnig að ekki hefði átt að gefa fyrirmæli til verktaka um að hefja framkvæmdir á þaki áður en stimplaðar og samræmdar teikningar frá aðalhönnuði og burðarvirkishönnuði lágu fyrir frá byggingarfulltrúa Eldra burðarvirki þoli breytingar Verktakinn óskaði eftir því í september 2021 að burðarþolssérfræðingur gerði sérstaka yfirlýsingu áður en verktakinn hæfi vinnu við verkið. Í yfirlýsingunni, sem er gefin út um mánuði síðar kemur fram að burðarþolshönnuður meti að eldra burðarvirki hússins muni þola þær breytingar sem eigi að gera. Hann bendir þó á að þar sem séu skemmdir þurfi að endurnýja þakplötur. Í framhaldi af því er þakið rifið niður. Það er svo í lok október sem verktakinn lýsir yfir áhyggjum af því að hönnun sé ekki fullunnin en að það eigi að byrja að steypa þann 28. október. Á þessu stigi verksins ætti hönnun að vera fullunnin. Svo væri ekki og verktaki ítrekar á fundi að enn eigi eftir að gefa út stimplaðar arkitektateikningar af umræddu þaki. Í nóvember heldur vinna áfram við ásteypun en um miðjan mánuð óskar verktaki eftir framlengingu á verktíma og bendir á að enn vanti burðarþolsteikningar. Við lok nóvember er hafin vinna við að leggja fyrsta lag af pappa á þakið og í janúar er komin einangrun. Búið er að leggja dúk yfir þakið til að verja húsnæðið á meðan framkvæmdirnar standa yfir. Vísir/Anton Brink Í janúar 2022 óskar verktaki eftir fyrirmælum frá eftirlitsaðila um ásteypulag í tengibyggingu en við mælingu kemur í ljós að lagið er þremur sentímetrum þykkara en var gert ráð fyrir í verklýsingu. Í febrúar er svo hafin vinna við þakfrágang. Í fundargerð kemur fram að 90 prósent vinnu við tengibygginguna sé lokið en enn vanti þökur. Á fundi þann 15. febrúar lýsir verktaki aftur yfir efasemdum varðandi burðarþolsgetu steyptrar milliplötu milli húsanna úti, þrátt fyrir yfirlýsingu frá hönnuði um að ekki þurfi að fara í meiri endurnýjun en nú sé þegar í gangi á plötunni. Þann 12. apríl er þakfrágangi lokið en þá liggja burðarvirkisteikningar af húsunum enn ekki fyrir. Niðurstaða skýrslu Innra eftirlits borgarinnar er svo sú að ekki hefði átt að gefa fyrirmæli til verktaka um að hefja framkvæmdir á þaki áður en stimplaðar og samræmdar teikningar frá aðalhönnuði og burðarvirkishönnuði lágu fyrir frá byggingarfulltrúa. Eins og áður kom fram voru niðurstöður skýrslunnar einnig að við lok verks þurfi umhverfis- og skipulagssvið að meta hvort hægt verði að sækja bætur vegna þeirra mistaka sem voru gerð. Það má gera ráð fyrir að það verði ekki fyrr en seint á þessu þar sem framkvæmdum á ekki að ljúka fyrr en í september. Fimm ára ferli Saga málsins er orðin nokkuð löng og nær yfir þrjú kjörtímabil borgarstjórnar. Þrír meirihlutar hafa þannig komið að ákvaðanatöku og þrír borgarstjórar. Borgarráð samþykkti þann 12. nóvember 2020 kaup á 2.097 fermetra fasteign við Kleppsveg 150-152 með það fyrir augum að henni yrði breytt í leikskóla. Í greinargerð með málinu kom fram að kauptilboð hljóðaði upp á 652 milljónir króna og samkvæmt greiningu og frumathugun umhverfis- og skipulagssviðs var gert ráð fyrir að kostnaður við breytingar yrði um 600 miljónir og var því áætlaður heildarkostnaður við kaupin og standsetningu 1,2 milljarðar rúmir. Leikskólinn tók til starfa síðsumars 2022 og í nóvember sama ár bárust ábendingar um sprungur í veggjum. Um einu og hálfu ári síðar, í mars 2024, fékk umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar tvær verkfræðistofur til að taka úr burðarvirki leikskólans. Í skýrslu innri endurskoðunar kemur fram að niðurstaða beggja hafi verið að þakið og byggingin stæðist ekki gildandi staðla varðandi burðarþol. Í athugasemdum annarrar þeirra voru einnig gerðar athugasemdir við að byggingarnar uppfylli ekki gildandi jarðskjálftastaðla og ekki heldur áður en farið var í framkvæmdir við leikskólann. Mat borgarstjóra á þessum tíma að rýma þyrfti húsnæðið á meðan lagfæring færi fram. Starfsemi leikskólans var í kjölfarið flutt í skrifstofuhúsnæði í Ármúla og er enn þar. Í október sama ár var samþykkt á fundi borgarráðs að bjóða út framkvæmdir við endurbætur og styrkingu á húsnæðinu. Verkefnið er þríþætt og snýst í fyrsta lagi um að fjarlægja og farga núverandi ásteypulag af þökum bygginganna og byggja upp nýtt viðsnúið þak, í öðru lagi að styrkja núverandi burðarvirki með því að steypa nýja burðarveggi í úthring byggingar og í þriðja lagi að lagfæra ásetu holplatna í þaki millibyggingar. Í skýrslu innri endurskoðunar kemur fram að endanlegur kostnaður liggi ekki fyrir en að lægsta tilboð í endurbætur hafi verið 223,2 milljónir. Þá sé ótalinn kostnaður við skýrslur ráðgjafa, hönnun, umsjón og eftirlit og flutning leikskólans og leigu á öðru húsnæði Heildarkostnaður vegna endurbóta á húsnæði og lóð og kaupa á fasteignum við Kleppsveg 150-152 nam samtals rúmum tveimur milljörðum, þar af námu framkvæmdir við kjallara 340 milljónir króna. Þá er ótalinn kostnaður sem hlýst af viðgerðum og endurbótum á burðarvirki leikskólans sem standa enn yfir Verði að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, setti rannsókn innri endurskoðunar af stað í fyrra sem borgarstjóri og segir niðurstöðurnar sýna að það hafi farið með pólitískri stefnu Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Viðreisnar í verkefni sem hafi verið frá upphafi óðs manns æði. „Að kaupa ónýtt hús fyrir 600 milljónir, gera ástandsskoðun á öllu nema burðarvirkinu, og þegar þú kaupir svona hús ertu í grunninn ekki að kaupa neitt nema burðarvirkið, því öllu er hent og allt er rifið,“ segir Einar sem ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Skýrt komi fram í skýrslunni að þetta mat hafi ekki verið framkvæmt áður en húsið er keypt. Sjö aðilar komi svo að hönnun hússins og eftirlit hafi verið „í molum“. Það sé aðkeypt og teikningar liggi ekki fyrir áður en það er ráðist í framkvæmdir. Teikningar af þaki hafi svo ekki legið fyrir fyrr en það var búið að byggja það og burðarþolsteikningum hafi ekki verið skilað fyrr en seint og illa. Sérfræðingur sem hafi verið valinn til að sinna burðarþoli hafi verið vanhæfur. Þá gerir Einar einnig athugasemdir við kostnaðinn sem var upprunalega áætlaður um 600 milljónir en varð tveir milljarðar. „Alltaf er pólitíkin að reka á eftir því að þetta verkefni klárist,“ segir Einar og að það sé fjallað um það í skýrslunni. Það hafi styst í kosningar árið 2022 og verktakinn hafi verið undir dagsektum ef hann skilaði ekki á réttum tíma. Verktakinn hafi verið byggingarstjóri og hafi átt að sinna eftirliti með verkinu. „Ég skil ekki hvernig var hægt að gera þetta svona illa og grunnurinn að þessu er að það er pólitísk ákvörðun, í nafni loftslagsaðgerða og markmiða, að sýna markaðnum og byggingageiranum hvernig er hægt að byggja með lágu kolefnisfótspori og þetta er eitthvað sem má aldrei endurtakast.“
Leikskólar Skóla- og menntamál Reykjavík Borgarstjórn Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Vinstri græn Píratar Viðreisn Byggingariðnaður Umhverfismál Bítið Mistök við byggingu Brákarborgar Tengdar fréttir Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir orð Einars Þorsteinassonar borgarstjóra um að ráðist verði í „alvöru úttekt“ á máli leikskólans Brákarborgar. 7. ágúst 2024 23:06 Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Það er ekki boðlegt að börn séu í leikskóla í „gettó-umhverfi“ að sögn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Verkefnisstjóri segir aftur á móti að gengið hafi vonum framar að umbreyta skrifstofuhúsnæði í leikskóla áður en skólastarf hefst í næstu viku. 8. ágúst 2024 19:10 Mest lesið Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Lögreglan lýsir eftir Sigríði Innlent Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Innlent Fékk hláturskast í ræðustól Innlent Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Innlent Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Innlent Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Innlent Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Erlent Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Erlent Fleiri fréttir Þingmenn stjórnarandstöðu foxillir yfir því að funda á sunnudegi Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Hár orkukostnaður er áhyggjuefni hjá atvinnulífinu Leitað að konu á sextugsaldri, fíkniefni á landamærum og skundað á Þingvöll Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Þinglok, Íran og rökrætt um skattastefnu Einn handtekinn eftir hópslagsmál Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Lögreglan lýsir eftir Sigríði Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Fékk hláturskast í ræðustól „Það er svo mikið rugl í gangi“ Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Hin grunaða með stunguáverka og blindflug án samræmds námsmats Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Sjá meira
Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir orð Einars Þorsteinassonar borgarstjóra um að ráðist verði í „alvöru úttekt“ á máli leikskólans Brákarborgar. 7. ágúst 2024 23:06
Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Það er ekki boðlegt að börn séu í leikskóla í „gettó-umhverfi“ að sögn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Verkefnisstjóri segir aftur á móti að gengið hafi vonum framar að umbreyta skrifstofuhúsnæði í leikskóla áður en skólastarf hefst í næstu viku. 8. ágúst 2024 19:10