Leikskólar

Fréttamynd

„Viljið þið gjöra svo vel að fyrir­gefa mér af öllu hjarta“

Inga Sæland segir að henni hafi orðið fótaskortur á tungunni þegar hún hvatti fólk til að gerast „leikskólakennarar og alvöru kennarar“ í viðtali um skólamál í Reykjavík síðdegis í gær. Biður hún leikskólakennara afsökunar og segist líta ofboðslega mikið upp til stéttarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Við fyrir­gefum ráð­herra þessa yfir­sjón“

Formaður Félags leikskólakennara segir orð Ingu Sæland ráðherra í Reykjavík síðdegis ekki hafa verið góða byrjun á því samtali að fjölga kennurum á leikskólastiginu. Þau hafi ekki farið vel í leikskólakennara en að henni verði fyrirgefin þessi yfirsjón.

Innlent
Fréttamynd

„Fólk er bara slegið“

Leikskólakennarar eru alvöru kennarar segir formaður svæðadeildar leikskólakennara í Reykjavík og segir fólk í stéttinni slegið yfir orðum barna- og menntamálaráðherra í gær. Þá segir hún að breyta þurfi því viðhorfi að gott sé að fara að vinna í leikskóla til að læra íslensku.

Innlent
Fréttamynd

Að­eins um 28 prósent inn­flytj­enda með grunn­færni í les­skilningi

Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði.

Innlent
Fréttamynd

PISA: „Þetta er á­kveðinn sorgardagur“

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir PISA-niðurstöðurnar ekki koma sér neitt á óvart. Hann hafi verið búinn að spá fyrir um hrap í mælingum. Hann segir þörf á samfélagsátaki til að bregðast við. Ráðherra boðaði fjölda aðgerða í kynningu sinni fyrr í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Ís­land sé með rauða spjaldið í náms­árangri barna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir Ísland með rauða spjaldið þegar kemur að námsárangri barna. Þessu verði að snúa við og hennar von sé að í næstu PISA-könnun verði hægt að sjá betri niðurstöður. Til að bregðast við niðurstöðunum verður lagður um hálfur milljarður í gerð nýrra námsgagna og aukin áhersla á ákveðin kjarnafög. 

Innlent
Fréttamynd

„Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“

VR fundar með Samtökum atvinnulífsins í dag vegna forsendubrests kjarasamninga. Rúmur mánuður er þar til stéttarfélög geta sagt lausum samningum. Formaður VR segir þurfa aðgerðir og samtal núna, hún vilji ekki endurnýtt loforð. Hún segir VR vilja hærri laun og fleiri frídaga.

Innlent
Fréttamynd

Ætla að opnan nýjan ung­linga­skóla í Ár­múla

Samþykkt var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni að breyta byggingu í Ármúla 28 til 30 og gera þar unglingaskóla fyrir um 250 nemendur. Gert er ráð fyrir að börn í Múlum og Skeifunni geti sótt þar nám. Ekki kemur fram hvenær framkvæmdum á að ljúka og hvenær skólastarf á að hefjast. 

Innlent
Fréttamynd

Leik­skóli spratt upp eins og gor­kúla

Nýr leikskóli með pláss fyrir yfir hundrað börn hefur sprottið upp með undraverðum hraða í Elliðaárdal. Verktaki afhendir borginni hann á næstu vikum. Vonast er til að hægt sé að hefja starfsemi þar sem allra fyrst.

Innlent
Fréttamynd

„Ég elska að vera hér“

Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.

Innlent
Fréttamynd

Loka Haga­borg í það minnsta í tvö ár

Loka á leikskólanum Hagaborg í Vesturbæ Reykjavíkur í tvö ár. Börn og starfsfólk leikskólans færast yfir á leikskólann Grandaborg. Bæta á við færanlegri einingu við Grandaborg til að fjölga plássum en breytingin fækkar leikskólaplássum í Reykjavík tímabundið um 18 á meðan framkvæmdunum stendur.

Innlent
Fréttamynd

Þöglu börnin gleymast í kerfinu

„Það er ekkert að barninu mínu. Samfélagið mætir honum bara ekki. Við foreldrar þurfum stöðugt að sanna það sem ætti að vera augljóst,“ segir Þuríður Sverrisdóttir. Sonur hennar,  Sverrir Styrkár, varð fimm ára í maí. Hann er greindur með einhverfu, málröskun og erfiðleika við fæðuinntöku. Síðustu ár hafa kennt Þuríði að réttindi fást ekki sjálfkrafa þótt greining liggi fyrir.

Lífið
Fréttamynd

„Miklar vendingar núna í mál­efnum bæjarins“

Nýr bæjarstjóri Grindavíkur lítur ekki svo á að farið sé gegn tilmælum Grindavíkurnefndarinnar með því að hefja skólastarf að nýju í bænum. Allt verði gert til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna og að miklar vendingar séu framundan í málefnum bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Virðing fyrir menntun leik­skóla­kennara er virðing fyrir börnum

Undanfarnar vikur hefur farið fram umræða um stöðu leikskólans, menntun leikskólakennara og framtíð fyrsta skólastigsins. Í þeirri umræðu hafa komið fram sjónarmið sem gefa til kynna að yngri börn kalli á minni menntun og að meginhlutverk leikskólans sé fyrst og fremst að sinna gæslu.

Skoðun
Fréttamynd

Hrafnagilshverfi stækkar ört

Á Hrafnagili hefur gríðarleg uppbygging orðið síðustu ár og fær skólinn þar meiriháttar yfirhalningu í sumar. Oddvitinn segir ánægjulegt hversu margt ungt fólk er að leita í bæinn.

Innlent
Fréttamynd

Minna fólk – aðrar þarfir

Í umræðunni um breytingar á leikskólakennaranámi hefur mikið verið vitnað í setninguna „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki.“ En þessi fullyrðing hittir ekki í mark.

Skoðun
Fréttamynd

Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar skorar á íslenska ríkið að setja í forgang að útbúa námsefni fyrir öll fög og alla bekki í samræmi við endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla sem tók gildi haustið 2024. Jafnframt er skorað á ríkið að tryggja nægt fjármagn til kaupa á námsefni svo að nemendur og kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni.

Innlent
Fréttamynd

Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“

Áheyrnarfulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum og foreldra leikskólabarna gagnrýna þá breytingu að meirihlutinn hafi aðskilið grunn- og leikskólastigið í tveimur nýjum ráðum. Þá gagnrýna fulltrúar starfsmanna og stjórnenda það harðlega að meirihlutinn ætli í samtal við ráðherra um styttingu leikskólakennaranámsins. 

Innlent
Fréttamynd

Segir milljarða­hönnun skóla í Voga­hverfi óraun­hæfa

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir nýjan meirihluta vilja einfalda uppbyggingu skóla og leikskóla og segir verða að læra af uppbyggingu Brákarborgar. Hönnun nýs skóla í Vogahverfi sem samþykkt var fyrir kosningar, verði til dæmis aldrei að veruleika. Framkvæmdin sé of dýr. Nota eigi teikningar sem til eru og nýta betur samstarfi við einkaaðila við hagkvæma uppbyggingu. 

Innlent
Fréttamynd

Jensína Edda er Reyk­víkingur ársins

Jensína Edda Hermannsdóttir leikskólastýra Laufásborgar er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun en þangað voru þær Jensína mættar eldsnemma við formlega opnun árinnar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Hætta aftur rann­sókn á Múlaborgarmálum

Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi.

Innlent