Snýr aftur á Álftanes með hunangið Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2025 15:30 David Okeke mun halda áfram að troða fyrir Álftanes á næstu leiktíð. vísir/Anton David Okeke mun halda áfram að spila lykilhlutverk í liði Álftaness í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð en hann staðfesti það á samfélagsmiðlum í dag. Hunangið verður áfram með í för.
Það vakti nefnilega athygli á síðustu leiktíð að hinn hávaxni Okeke skyldi sífellt sjást með hunang innan seilingar. Þar sem Okeke er að glíma við hjartavandamál þá hentar honum ekki að drekka örvandi orkudrykki eins og samherjar hans gera. Hann sækir orkuna frekar úr hunangi. „Við ákváðum að ég skildi vera með eitthvað sem væri hollt og gæfi mér sykur og orku í leikjum. Okkur datt þá hunang í hug. Ég fæ mér alltaf smá og held svo áfram. Það bragðast rosalega vel,“ sagði Okeke skellihlæjandi í viðtali við Vísi í vetur. Og nú hefur hann staðfest að hann muni koma aftur. „Við erum með stóra tilkynningu. Ég sný aftur með Álftanesi á næstu leiktíð. Ég get ekki beðið. Ég er svo glaður og spenntur,“ segir Okeke í myndbandi. „En ég verð ekki einn. Þessi kemur líka,“ segir hann og tekur upp flösku af hunangi: „Ég og hunangið getum ekki beðið. Áfram nú!“ Okeke fór með Álftnesingum í undanúrslit Bónus-deildarinnar í vor, lengra en liðið hefur nokkru sinni náð. Þessi 205 sentímetra Ítali lék áður með Haukum og Keflavík en hann kom fyrst hingað til lands árið 2021. Okeke skoraði að meðaltali 18,5 stig í leik í vetur og tók 8,2 fráköst.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira