Stjórnarandstaða setji ný viðmið á þingi sem ógni lýðræðinu Lovísa Arnardóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 2. júlí 2025 20:14 Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingkona er ósátt við stjórnarandstöðuna. Vísir/Vilhelm Algjör pattstaða ríkir á Alþingi. Viðræður um þinglok hafa ekki skilað árangri og á meðan halda maraþonumræður um veiðigjöld áfram. Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir umræður um þinglok mjakast áfram. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingkona Flokks fólksins, segir stjórnarandstöðuna setja ný viðmið sem ógni lýðræðinu.
Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, viðurkenndi í Reykjavík síðdegis í dag að um málþóf væri að ræða. Það gerði hún í tengslum við grein sem hún skrifaði árið 2019 þegar umræður fóru fram á þingi um þriðja orkupakkann. Þá sat Sjálfstæðisflokkur í ríkisstjórn. Umræðan var í heildina 146 klukkustundir og er sú lengsta í sögu þingsins. Þar á eftir er umræða um Icesave sem var 135 klukkustundir og umræðan um veiðigjöldin var orðin 126 klukkustundir klukkan tíu í morgun og er því að nálgast það að verða sú lengsta. Sjá einnig: Bryndís gengst við málþófinu „Ég held það séu mjög fáir í dag sem myndu vilja sjá eftir einum einasta klukkutíma af umræðunni sem átti sér stað í tengslum við Icesave. Þetta veiðigjaldamál er að kollvarpa því kerfi sem við höfum haft og gengið svo vel til að auka hagsæld og verðmætasköpun í samfélaginu. Það er meingallað og í raun algjörlega útilokað að málið gangi fram og verði klárað með þeim hætti sem það liggur núna,“ segir Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir nóg eftir af umræðunni enn en hún stendur enn yfir þegar þessi frétt er skrifuð. Taki lýðræðið í gíslingu Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingkona Flokkur fólksins, sagði í dag að aldrei hefði verið jafn erfitt að semja um þinglok. Hún segist ekki vongóð um að samningar muni nást. Þegar stjórnarandstaðan tali um að semja sé hún bara að meina að stjórnin eigi að gera eins og þau vilji. „Þessi stjórnarandstaða er að setja ný viðmið, hún er búin að taka lýðræðið í gíslingu, hún ber enga virðingu fyrir úrslitum kosninga, fyrir vilja þjóðarinnar, fyrir meirihluta Alþingis eða neinu öðru. Þetta er bara mjög hættulega þróun,“ segir Ásthildur Lóa en einnig var rætt við hana í kvöldfréttum Sýnar. Hún segir að ef þessu verði leyft að gerast svona og þetta verði viðmiðið sé það stórhættulegt lýðræðinu í landinu. Bergþór segir enn samræður meðal þingflokksformanna um þinglok. Samræðurnar mjakist og það séu góð samtöl í gangi, stöðugt frá fimmtudagskvöldi. „Það er ákveðið hökt núna en það hefur verið mikill samningsvilji hjá okkur í stjórnarandstöðunni,“ segir hann og að lagðar hafi verið fram lausnir í umdeildustu málunum sem stjórnarandstaðan telji skynsamlegar. Hann segist bjartsýnn að hægt verði að hnýta þetta saman en að menn verði að mætast á miðri leið. Bergþór Ólason er bjartsýnn. Vísir/Vilhelm Mynd Ásthildar Lóu ekki skýr Hann segir Ásthildi Lóu ekki inni í þessum samtölum og að hennar mynd sé ekki alveg skýr. „Ég reikna með að þessi jákvæðu samtöl haldi áfram.“ Eins og stendur heldur umræðan áfram um veiðigjöld á þinginu. Þing hófst klukkan tíu í morgun. Tekið var hlé um klukkan 16 í klukkustund. Þegar fréttin er birt eru enn nokkrir á mælendaskrá og því ljóst að umræðan mun halda eitthvað áfram.
Alþingi Miðflokkurinn Flokkur fólksins Breytingar á veiðigjöldum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Ólafur Thors og Bjarni Ben sneru sér við í kaldri gröf Össur Skarphéðinsson segir að framámenn í sögu Sjálfstæðisflokksins á borð við Ólaf Thors og Bjarna Benediktsson eldri myndu líklega snúa sér við í kaldri gröf mættu eyru þeirra og augu nema hvernig arftakar þeirra fara höndum um lýðræðið. 2. júlí 2025 18:41 Þinglok 2026 verði 12. júní Þó að þinglok virðast ekki í sjónmáli vegna umræðna um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefur samkomulag náðst innan forsætisnefndar þingsins um starfsáætlun næsta löggjafarþings, þess 157. í röðinni. Samkvæmt áætluninni, sem samþykkt var í gær, verður þing sett þriðjudaginn 9. september næstkomandi og þingi frestað föstudaginn 12. júní 2026. 2. júlí 2025 14:00 Gagnrýni Bryndísar á málþóf frá 2019 vekur athygli Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í skoðanagrein árið 2019 að málþóf ætti ekkert skylt við málfrelsi eða lýðræði og þekktist nánast hvergi utan Íslands. Breyta þyrfti fyrirkomulaginu á Alþingi svo fámennur hópur stjórnarandstæðinga gæti ekki tekið þingið í gíslingu. 2. júlí 2025 13:16 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira
Ólafur Thors og Bjarni Ben sneru sér við í kaldri gröf Össur Skarphéðinsson segir að framámenn í sögu Sjálfstæðisflokksins á borð við Ólaf Thors og Bjarna Benediktsson eldri myndu líklega snúa sér við í kaldri gröf mættu eyru þeirra og augu nema hvernig arftakar þeirra fara höndum um lýðræðið. 2. júlí 2025 18:41
Þinglok 2026 verði 12. júní Þó að þinglok virðast ekki í sjónmáli vegna umræðna um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefur samkomulag náðst innan forsætisnefndar þingsins um starfsáætlun næsta löggjafarþings, þess 157. í röðinni. Samkvæmt áætluninni, sem samþykkt var í gær, verður þing sett þriðjudaginn 9. september næstkomandi og þingi frestað föstudaginn 12. júní 2026. 2. júlí 2025 14:00
Gagnrýni Bryndísar á málþóf frá 2019 vekur athygli Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í skoðanagrein árið 2019 að málþóf ætti ekkert skylt við málfrelsi eða lýðræði og þekktist nánast hvergi utan Íslands. Breyta þyrfti fyrirkomulaginu á Alþingi svo fámennur hópur stjórnarandstæðinga gæti ekki tekið þingið í gíslingu. 2. júlí 2025 13:16