Erlent

Hafnar gagn­rýni á sam­skipti við lyfjarisa í far­aldrinum

Kjartan Kjartansson skrifar
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir ekkert dulið hafa verið í samskiptum sínum við lyfjarisa í heimsfaraldrinum.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir ekkert dulið hafa verið í samskiptum sínum við lyfjarisa í heimsfaraldrinum. AP/Omar Havana

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins varði samskipti sín við forstjóra lyfjarisans Pfizer í kórónuveirufaraldrinum þegar hann kom fyrir Evrópuþingið í gær. Það var í fyrsta skipti sem forsetinn varði sig opinberlega eftir að framkvæmdastjórnin var talin hafa brotið stjórnsýslureglur þegar hún neitaði að afhenda textaskilaboðin í vor.

Almenni dómstóll Evrópusambandsins komst að þeirri niðurstöðu í maí að vinnubrögð framkvæmdastjórnarinnar hefðu ekki samræmst góðum stjórnsýsluháttum þegar hún hafnaði blaðamanni um textaskilaboð sem áttu að hafa farið á milli Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar, og forstjóra lyfjarisans Pfizer.

Skilaboðin fóru á milli þeirra rétt áður en framkvæmdastjórnin gerði stærsta samning sögunnar um kaup á bóluefni Pfizer. Framkvæmdastjórnin hélt því fram að hún hefði skilaboðin ekki undir höndum og jafnvel þótt hún gerði það féllu þau ekki undir upplýsingalög.

Boðað hefur verið til atkvæðagreiðslu um vantraust á hendur von der Leyen vegna málsins á Evrópuþinginu á fimmtudag. Hún tjáði sig um málið í fyrsta skipti frá því að dómurinn féll þegar hún kom fyrir þingið í gær.

Sagði von der Leyen það ekki hafa verið neitt leyndarmál að hún hefði verið í sambandi við fulltrúa fyrirtækja sem framleiddu bóluefni á sama hátt og hún talaði við fremstu faralds- og veirufræðinga heims, að því er kemur fram í frétt evrópsku útgáfu Politico.

„Að gefa það í skyn að þessir samningar hafi á einhvern hátt ekki samræmst hagsmunum Evrópu er einfaldlega rangt, sama hvernig á það er litið,“ sagði forsetinn.

„Það voru engin leyndarmál, engin falin ákvæði, engar skuldbindingar um að kaupa fyrir aðildarríkin,“ sagði von der Leyen ennfremur.

Sakar andstæðinga um að dreifa samsæriskenningum

Evrópuþingið greiðir atkvæði um vantrauststillöguna á fimmtudag en tvo þriðju hluta þarf til þess að samþykkja hana. Nær engar líkur eru á að hún nái fram að ganga.

AP-fréttastofan segir að í tillögunni sé blandað saman ásökunum sem tengjast skilaboðum von der Leyen við Pfizer-forstjórann, um misbeitingu á fjármunum sambandsins og um afskipti af kosningum í Þýskalandi og Rúmeníu.

Sakaði von der Leyen þá sem hefðu gagnrýnt framkvæmdastjórnin fyrir textaskilaboðin um að „spinna hraktar samsæriskenningar“. Fjarhægrimenn á Evrópuþinginu reyndu nú að endurskrifa söguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×