Lífið samstarf

Bylgju­lestin mætti á Götu­bita­hátíðina - Ilmandi mynda­veisla

Bylgjulestin
Kristín Ruth og Svali Kaldalóns stýrðu Bylgjulestinni síðasta laugardag. Milli þeirra situr Yesmine Olsson sem var einn margra góðra gesta sem kíktu í heimsókn.
Kristín Ruth og Svali Kaldalóns stýrðu Bylgjulestinni síðasta laugardag. Milli þeirra situr Yesmine Olsson sem var einn margra góðra gesta sem kíktu í heimsókn. Mynd/Hulda Margrét.

Það ríkti frábær og ilmandi stemning í Hljómskálagarðinum í Reykjavík um helgina. Götubitahátíðin fór fram föstudag til sunnudags og var aðsóknin mjög góð. Bylgjulestin mætti í garðinn á laugardaginn og var í beinni útsendingu milli kl. 12 og 16.

Hulda Margrét ljósmyndari mætti á staðinn og tók fullt af myndum. Smelltu endilega á hvítu örina til hægri til að sjá fleiri myndir.

„Þetta var virkilega góður dagur,“ sagði Kristín Ruth. „Við fengum að smakka fullt af góðum mat enda var garðurinn fullur af virkilega spennandi matarvögnunum á þessari stærstu götubitahátíð hingað til. Eins og venjulega fengum við til okkar frábæra viðmælendur sem m.a. fræddu okkur um iKamperinn og snilldinni sem fylgir því að ferðast um landið með topptjald! Svo gáfum við eins og venjulega fullt af gjöfum, sundpokarnir kláruðust og fullt af fólki fór heim með vinninga úr lukkuhjóli Bylgjunnar.“

Metþátttaka var á Götuhátíðinni í ár, bæði þegar kemur að fjölda matarvagna og gesta en Róbert Aron Magnús­son, skipu­leggj­andi hátíðar­inn­ar, áætlar að um 90.000 gestir hafi heimsótt hátíðina um helgina. Hún var fyrst var haldin árið 2015 á Miðbakka við Reykja­vík­ur­höfn þar sem tólf matarvagnar seldu mat.

„Við vorum með yfir 40 söluaðila sem seldu fjölbreyttan mat og drykki. Sala veitinga þrefaldaðist frá síðasta ári og erum við skipu­leggj­end­ur Götu­bitans himinlifandi með þessar góðu viðtökur. Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti og reyna að finna út hvernig við getum gert hátíðina á næsta ári betri. Í fyrra sagðist ég óska eftir betra veðri á næsta ári og fékk það. Þannig að nú geri ég bara ráð fyrir hitabylgju á næsta ári.“

The Food Truck hreppti dóm­nefnd­ar­verðlaun Götu­bita­hátíðar­inn­ar í ár og gestir hátíðarinnar völdu Churros vagninn götubita fólksins.

„Dómnefndin hefur aldrei verið eins lengi að koma að niðurstöðu,“ segir Róbert. „Hún var sammála um að gæðin hafi bæst á hverju ári og aldrei hafi jafn margir vagnar átt möguleika á að vinna til verðlauna.“

Samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar voru með í för. Sjóvá og Samgöngustofa fjölluðu um umferðaröryggi, Topptjöld og vagnar voru með með iKamper vagn til sýnis, 7up Zero gaf gestum frískandi drykki, bílaumboðið Askja hélt bílasýningu og gjafapokarnir frá Bylgjunni voru að sjálfsögðu á sínum stað með 7up Zero pink, nammi frá Danól og varning frá Bylgjunni.

Síðasti áfangastaðir Bylgjulestarinnar í sumar er Vaglaskógur næsta laugardag, 26. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.