Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sumar á Sýrlandi 5. ágúst 2025 14:03 Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson. Þessir þrír hafa ekki komið fram saman á Stuðmannasviði síðan 1976. Stuðmannaveislan langþráða Sumar á Sýrlandi, verður haldin í Hörpu laugardaginn 15. nóvember n.k. með mörgum af fremstu söngstjörnum Íslands.
Þeirra á meðal eru Bubbi, Bríet, Friðrik Dór, Mugison, Magni og Salka Sól sem þar munu syngja við undirleik Stuðmannanna Ásgeirs Óskarssonar, Þórðar Árnasyni, Guðmundar Péturssonar, Jakobs Frímanns o.fl. Auk þeirra hafa nú tilkynnt komu sína sjálfir lykilhöfundarnir og upphaflegu flytjendur þessara sögufrægu laga, þeir Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Sigurður Bjóla, en þessir þrír hafa ekki komið fram saman á Stuðmannasviði síðan 1976. Hér er því sannkallaður tímamótaviðburður í uppsiglingu. „Ég ætla svo sannarlega að bregða mér í betri buxurnar og taka af heilum hug þátt í þessum veglegu hátíðarhöldum„ segir Sigurður Bjóla en Sumar á Sýrlandi markar fyrstu hljóðversupptökur sem út komu með lögum hans og textum, þ.m.t. sígildra laga á borð við „Í bláum skugga“ og sjálft titillagið, „Sumar á Sýrlandi“. „Þetta er í raun afar fágætt tækifæri til að upplifa í senn anda laganna úr ranni sjálfra söngvaskáldanna og svo nýja og óvænta stjörnuflytjendur þess tímamótaverks sem Sumar á Sýrlandi sannarlega er," segir tónleikahaldarinn Margeir Steinar Ingólfsson og undir það tekur Einar Bárðarson, samstarfsmaður Stuðmanna til margra ára. Hlakkar til að hitta félagana Egill Ólafsson var staddur erlendis þegar í hann náðist: „Jú, ég hlakka vissulega til að hitta mína gömlu, góðu vini í Eldborg og stilla þar a.m.k. saman nokkra vel valda strengi“. Valgeir Guðjónsson var glaðbeittur að vanda þegar í hann náðist vegna málsins og vitnaði í þekktan texta Ómars Ragnarssonar: „Þrjú hjól undir bílnum, en áfram skröltir hann þó“! Víst er að mikil spenna og eftirvænting hefur myndast vegna þessara hálfrar aldar afmælistónleika Sumars á Sýrlandi, en umrædd breiðskífa markaði sannarlega upphaf þess ótrúlega Stuðmannaævintýris sem fært hefur þjóðinni marga tugi sígildra laga og texta, vinsælustu kvikmynd Íslandssögunnar auk nokkurra annarra, kvikmyndaðar ævintýraferðir um fjarlæg ævintýralönd á borð við Kína og Rússland, umhverfisvænan Grænan her, skrautlegar tónlistarhátíðir um gjörvallt land, myndskreyttar bækur og svo mætti lengi telja. Auk Sýrlandslaganna verður þarna skartað helstu rjómatoppum gjörvalls Stuðmannaferilsins. Forsala á tónleikana hefst á tix.is kl. 10:00 miðvikudaginn 6. ágúst og almenn miðasala hefst síðan kl. 10:00 fimmtudaginn 7. ágúst. Hægt er að tryggja sér bestu sætin í salnum á slóðinni: studmenn.is Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um tónleikana.
Tónlist Mest lesið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Tónlist „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Lífið Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Lífið Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Lífið samstarf Fleiri fréttir Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Sjá meira