Formúla 1

Opin­beruðu sam­bandið með sigurkossi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lando Norris og Magui Corceiro eru ánægð saman og sambandið hefur greinilega mjög góð áhrif á akstur hans.
Lando Norris og Magui Corceiro eru ánægð saman og sambandið hefur greinilega mjög góð áhrif á akstur hans. Getty/Beata Zawrzel

Breski formúlukappinn Lando Norris tyggði sér ekki aðeins sigur í formúlu 1 kappakstrinum í Ungverjalandi um helgina heldur fagnaði hann sigrinum með því að staðfesta endanlega ástarsamband sitt fyrir framan myndavélarnar.

Norris hefur oft svarað spurningum um kærustur með því að segja að hann sé enn einhleypur.

Portúgalska leikkonan og fyrirsætan Margarida Corceiro, kölluð Magui, hefur þó verið áberandi á síðustu keppnum eins og í Mónakó. Þau hafa líka sést á samfélagsmiðlum hvors annars.

Þau höfðu samt ekki formlega staðfest samband sitt.

Eftir sigurinn í Ungverjalandi var Magui hins vegar komin niður með starfsmönnum McLaren. Norris eyddi endanlega öllum vafa um samband þeirra með því að smella á hana sigurkossi. Hún brosti út að eyrum og hafði ekki augun af Norris.

Magui er ekki í sínu fyrsta sambandi með frægum íþróttamanni því hún var kærasta portúgalska knattspyrnumannsins Joao Felix frá 2019 til 2023.

Sambandið er greinilega að hafa góð áhrif á Norris því frá og með Mónakókappakstrinum þá hefur hann unnið fjórar af síðustu sjö keppnum þar af þrjár af síðustu fjórum.

Norris hefur fyrir vikið minnkað forskot liðsfélaga síns Oscar Piastri niður í níu stig í baráttunni um heimsmeistaratitilinn þegar aðeins þrjár keppnir eru eftir.

Það þýðir að það verður spennandi keppni á milli liðsfélaga um heimsmeistaratitilinn sem hvorugur þeirra hefur unnið. Norris varð annar í heimsmeistarakeppninni í fyrra en Piastri endaði þá í fjórða sæti. Árið á undan varð Norris sjötti en í Piastri í níunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×