„Það var góð barátta í okkur og mikil liðsheild“ Árni Jóhannsson skrifar 7. ágúst 2025 20:50 Ingibjörg í leik með Stjörnunni í sumar. Vísir/Anton Brink Fyrsti markaskorari Stjörnunnar í kvöld í 3-0 sigri þeirra á Tindastól, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, gat verið mjög ánægð með leikinn í kvöld. Hún var mjög fegin að sjá boltann í netinu en hafði látið verja oft frá sér í sumar.
Þrjú mörk, þrjú stig og að halda hreinu hlýtur að vekja góðar tilfinningar og var Ingibjörg spurð út í þær tilfinningar skömmu eftir leikinn. „Hún er bara mjög ljúf. Eins og þú segir, þrjú mörk og þrjú stig. Það gerist ekki betra.“ Hvað voru Stjörnukonur að gera rétt í þessum leik? „Ég mundi bara segja að það var góð barátta í okkur og mikil liðsheild. Við bökkuðum hvor aðra upp allan tímann. Það var 0-0 í hálfleik og nóg eftir og við bara héldum áfram.“ Var eitthvað sérstakt rætt í hálfleik. Staðan 0-0 en flóðgáttirnar opnuðust í síðari hálfleik. „Nei, bara að halda áfram. Leikurinn er 90 mínútur og mér fannst við vera með þennan leik í hálfleik þó svo að það hafi ekki verið komið mark.“ Þessi úrslit fleyta Stjörnunni upp í efri helminginn á markatölu en þessi úrslit hljóta að gefa liðinu byr undir báða vængi. „Ég verð að viðurkenna að ég er ekki með stöðutöfluna á hreinu en þetta er mjög þétt þarna. Þannig að þrjú stig gefa okkur helling.“ Hvernig horfir Ingibjörg á framhaldið. Stjarnan er í góðum séns á að komast og vera í efri hlutanum. „Klárlega, það er alltaf stefnan að vera í efri hlutanum. Ef við spilum eins og við gerðum í dag þá ætti það að vera lítið vesen.“ Ingibjörg var að skora sitt fyrsta mark í sumar og var spurð að lokum út í það hvernig það var að sjá boltann syngja í netinu. „Það var mjög ljúft. Ég hef látið verja frá mér nokkrum sinnum í sumar og það var fínt að það var ekki í dag.“
Besta deild kvenna Stjarnan Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira