Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. ágúst 2025 11:41 Tekin var skýrsla af stúlkunni í Barnahúsi þar sem hún lýsti engum kynferðisbrotum af hálfu föður síns. Vísir/Vilhelm Faðir sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega á dóttur sinni vill ekki heimila lögreglu aðgang að síma sínum og tölvu við rannsókn málsins. Hann segir að þar sé að finna viðkvæm gögn sem tengist tilteknum stjórnmálaflokki. Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem felldi úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði fallist á kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að rannsaka innihald símans og tölvunnar. Það var þann 23. maí síðastliðinn sem lögreglu barst tilkynning frá bráðamóttöku Landspítalans um að starfsmaður á bakvakt Barnaverndar væri þar stödd með stúlku og móður hennar. Starfsmaðurinn upplýsti að stúlkan hefði greint frá því fyrr um daginn í skólanum að faðir hennar meiddi hana stundum á kynfærasvæðinu og stingi einhverju inn í kynfæri hennar. Það meiddi hana stundum það mikið að það blæddi úr kynfærum hennar. Faðirinn neitar sök Faðirinn var handtekinn samdægurs á heimili sínu. Hann neitaði sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Við handtöku var faðirinn með Asus fartölvu og Samsung farsíma á sér sem lögregla lagði hald á. Faðirinn heimilaði ekki afritun þeirra og neitaði að gefa upp PIN-númer tækjanna. Lögregla krafðist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. ágúst að fá að rannsaka símann og tölvuna. Verjandi föðurins mótmælti kröfunni, sagði ekki fyrir hendi rökstuddan grun um og útskýrði að faðirinn vildi ekki veita aðgang að tækjunum því í þeim kunni að vera viðkvæm gögn tengd tilteknum stjórnmálaflokki. Héraðsdómur féllst á að kominn væri fram rökstuddur grunur um að faðirinn hefði brotið kynferðislega gegn dóttur sinni og að umrædd gögn kunni að varpa frekara ljósi á meint brot. Rannsóknarhagsmunir væru augljósir og þeir vægju þyngra en réttur föðurins til friðhelgi einkalífs. Var lögreglu því veittur aðgangur að tækjunum og heimild til að rannsaka og afrita gögn símans og fartölvunnar sem og þau gögn sem kunna að vera geymd á skýi eða öðrum geymslum á veraldarvefnum. Ekkert sést í læknisskoðun Verjandi föðurins kærði úrskurðinn til Landsréttar sem leit málið öðrum augum. Vísaði Landsréttur til þess að bæði móðir og faðir barnsins hefðu í skýrslutökum vísað til þess að vegna útferðar hafi þau þrifið og þurrkað kynfærasvæði dóttur sinnar með blautþurrkum. Hún hafi ekki verið sátt við það. Þá hafi verið tekin skýrsla af stúlkunni í Barnahúsi og framkvæmd á henni læknisskoðun. Hún hafi ekki lýst broti föður og ekkert óeðlilegt sést í læknisskoðun. Þá hafi lögregla ekki útskýrt hvernig tölvan og síminn tengist hinu ætlaða broti föðurins og hvaða upplýsingar megi ætla að fáist sem geti hjálpað við rannsókn málsins. Í því samhengi er vísað til skýrslu lögreglu frá 5. ágúst þar sem sagt er að nauðsynlegt sé að rannsaka raftækin með tilliti til þess „hvort eitthvað finnist í þeim sem við kemur rannsókn þessa máls“ eða „hvort raftækin innihaldi barnaníðsefni“. Landsréttur bendir á að slík brot séu ekki til rannsóknar í málinu. Að því sögðu hafnaði Landsréttur beiðni lögreglu sem að óbreyttu getur ekki skoðað síma og tölvu föðurins. Veist þú meira um málið? Við tökum á móti ábendingum af öllu tagi á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Fréttin hefur verið uppfærð. Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem felldi úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði fallist á kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að rannsaka innihald símans og tölvunnar. Það var þann 23. maí síðastliðinn sem lögreglu barst tilkynning frá bráðamóttöku Landspítalans um að starfsmaður á bakvakt Barnaverndar væri þar stödd með stúlku og móður hennar. Starfsmaðurinn upplýsti að stúlkan hefði greint frá því fyrr um daginn í skólanum að faðir hennar meiddi hana stundum á kynfærasvæðinu og stingi einhverju inn í kynfæri hennar. Það meiddi hana stundum það mikið að það blæddi úr kynfærum hennar. Faðirinn neitar sök Faðirinn var handtekinn samdægurs á heimili sínu. Hann neitaði sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Við handtöku var faðirinn með Asus fartölvu og Samsung farsíma á sér sem lögregla lagði hald á. Faðirinn heimilaði ekki afritun þeirra og neitaði að gefa upp PIN-númer tækjanna. Lögregla krafðist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. ágúst að fá að rannsaka símann og tölvuna. Verjandi föðurins mótmælti kröfunni, sagði ekki fyrir hendi rökstuddan grun um og útskýrði að faðirinn vildi ekki veita aðgang að tækjunum því í þeim kunni að vera viðkvæm gögn tengd tilteknum stjórnmálaflokki. Héraðsdómur féllst á að kominn væri fram rökstuddur grunur um að faðirinn hefði brotið kynferðislega gegn dóttur sinni og að umrædd gögn kunni að varpa frekara ljósi á meint brot. Rannsóknarhagsmunir væru augljósir og þeir vægju þyngra en réttur föðurins til friðhelgi einkalífs. Var lögreglu því veittur aðgangur að tækjunum og heimild til að rannsaka og afrita gögn símans og fartölvunnar sem og þau gögn sem kunna að vera geymd á skýi eða öðrum geymslum á veraldarvefnum. Ekkert sést í læknisskoðun Verjandi föðurins kærði úrskurðinn til Landsréttar sem leit málið öðrum augum. Vísaði Landsréttur til þess að bæði móðir og faðir barnsins hefðu í skýrslutökum vísað til þess að vegna útferðar hafi þau þrifið og þurrkað kynfærasvæði dóttur sinnar með blautþurrkum. Hún hafi ekki verið sátt við það. Þá hafi verið tekin skýrsla af stúlkunni í Barnahúsi og framkvæmd á henni læknisskoðun. Hún hafi ekki lýst broti föður og ekkert óeðlilegt sést í læknisskoðun. Þá hafi lögregla ekki útskýrt hvernig tölvan og síminn tengist hinu ætlaða broti föðurins og hvaða upplýsingar megi ætla að fáist sem geti hjálpað við rannsókn málsins. Í því samhengi er vísað til skýrslu lögreglu frá 5. ágúst þar sem sagt er að nauðsynlegt sé að rannsaka raftækin með tilliti til þess „hvort eitthvað finnist í þeim sem við kemur rannsókn þessa máls“ eða „hvort raftækin innihaldi barnaníðsefni“. Landsréttur bendir á að slík brot séu ekki til rannsóknar í málinu. Að því sögðu hafnaði Landsréttur beiðni lögreglu sem að óbreyttu getur ekki skoðað síma og tölvu föðurins. Veist þú meira um málið? Við tökum á móti ábendingum af öllu tagi á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Veist þú meira um málið? Við tökum á móti ábendingum af öllu tagi á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira