Leggst undir hnífinn vegna brjóstakrabbameins og frestar túrnum Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. ágúst 2025 09:00 Tónlistarkonan Jessie J hefur gengið í gegnum ýmsar heilsufarslegar hremmingar. Getty Tónlistarkonan Jessie J hefur frestað og fellt niður tónleika á yfirvofandi tónleikaferðalagi sínu um Bretland og Bandaríkin vegna skurðaðgerðar sem hún þarf að gangast undir vegna brjóstakrabbameins.
Hin 37 ára Jessie J, sem heitir réttu nafni Jessica Ellen Cornish, greindi frá því í júní að hún hefði greinst með brjóstakrabbamein og myndi fara í krabbameinsmeðferð við því Hún átti síðan að fara á tónleikaferðalagið „The No Secrets Tour“ um Bretland og Evrópu í október og um Bandaríkin í nóvember en greindi frá því í myndbandi á Instagram að tónleikunum hefði verið frestað eða þeim aflýst. „Því miður þarf ég að fara í aðra aðgerð, ekkert mjög alvarlegt, en það þarf að gera það fyrir árslok og því miður lendir það í miðjunni á tónleikaferðalaginu sem ég var búin að bóka,“ sagði hún í myndbandinu. View this post on Instagram A post shared by Jessie J (@jessiej) „Ég er pirruð og leið, en þetta er líka eins og það er, og ég þarf að ná mér, ég þarf að verða heil og ég veit að þetta er rétta ákvörðunin sem þarf að taka,“ sagði hún jafnframt. „Svo ég er að fresta tónleikaferðalaginu fram á næsta ár.“ Jessie J fór í aðgerð vegna krabbameinsins í júní, ekki liggur fyrir hvort um er að ræða allsherjar brjóstnám en hún sagðist hafa misst mikið hár eftir aðgerðina. Brjóstakrabbameinið eru ekki fyrstu heilsuvandræðin sem Jessie glímir við en hún greindist með hjartagalla átta ár, fékk vægt slag átján ár og missti heyrnina tímabundið árið 2020.
Krabbamein Bretland Bandaríkin Hollywood Mest lesið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Fleiri fréttir Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Sjá meira