Lýst eftir Ólafi í Búlgaríu Agnar Már Másson skrifar 30. ágúst 2025 17:49 Ólafur er eftirlýstur sem týndur einstaklingur í alþjóðakerfi lögreglunnar. Samsett/Getty/facebook Lögreglan í Búlgaríu leitar að Ólafi Austmann Þorbjörnssyni sem sást síðast fyrir tæplega tveimur vikum. Aðstandendur hafa ekki heyrt frá honum síðan 18. ágúst og systir hans biðlar til fólks að hafa samband ef það veit
meira
Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning 21. ágúst um Íslending sem var talinn týndur í Búlgaríu, að sögn Garðars Más Garðarssonar varðstjóra, sem staðfestir að Ólafur sé eftirlýstur í alþjóðakerfi lögreglu sem týndur einstaklingur. Ingibjörg Austmann, systir Ólafs, vakti athygli á málinu á Facebook í dag, inni á hópnum Íslendingar í útlöndum, og óskaði eftir hjálp frá fólki sem þekkti til í höfuðborginni Sófíu í Búlgaríu. Ólafur sást síðast á bensínstöð í Búlgaríu.Facebook Þar kemur fram að hvorki hafi sést né heyrst frá honum síðan seinnipart mánudagsins 18. ágúst. Síðast hafi hann sést á bensínstöð í Sófíu. „Hann hefur verið veikur og verið að fá krampaköst,“ skrifar Ingibjörg. Ólafur er 184 sentímetrar á hæð, með dökkt hár og grannvaxinn. Hann var að sögn Ingibjargar í gallabuxum og svartri skyrtu þegar hann hvarf. Systir hans bendir á að hann sé líklega skólaus, símalaus og án skilríkja. Hún bendir fólki á að hringja í síma 112 ef það hefur frekari upplýsingar um ferðir Ólafs. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Íslendingar erlendis Búlgaría Lögreglumál Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira